Eru allir tilbúnir? Fyrir flugtak? Þessi maður bjó í alvöru til fyrstu þotuhreyflaknúnu Tesluna og hann nánast kveikir í öllu í kring...
En nú er þetta í alvöru sturlað.
Hér er nefnilega maður sem hefur sett þrjá þotumótora aftan á Tesluna (Model S85D) sína með öllu tilheyrandi, að vængjum og stéli undanskildu. Það væri kannski í lagi ef hann færi á eitthvert lokað svæði til að prófa geimflaugina eða hvað sem á að kalla það sem hann hefur búið til. En nei, það gerir hann ekki. Hann fer út í umferðina og prófar.
Eins og það sé ekki nógu alvarlegt og bara gapandi galið þá er hann að taka upp myndband á meðan hann er að aka.
Með eldstrókana standandi aftan úr bílnum!
Myndi maður vilja vera á eftir þessum í umferðinni? Eh, nei takk. Myndir/Skjáskot/YouTube
Markmiðið með öllu þessu er að slá hröðunarmet. Það er vitað að bíllinn hefur við prófanir framleiðanda komist úr kyrrstöðu í 100 kílómetra hraða á 3.3 sekúndum. En Matt náði því ekki.
Besti tíminn hans var 4.38 sekúndur. Það var bara ekki nógu gott.
Þess vegna fór hann út í þetta með þotumótorana. Og jú, hann náði árangri en ég skal ekki hafa um það fleiri orð því kannski ætlar einhver að horfa á myndbandið, eða hluta þess.
Prófessor Vandráður og Georg gírlausi hvað?
Ég held að hann sé fundinn: Sturlaði vísindamaðurinn úr teiknimyndasögunum. Svei mér þá! Það er kannski ljótt að segja það en að manni læðist sá grunur að gaurinn hafi gleypt eitthvað harðara en poppkorn og hesthúsað einhverju öflugra en smartís.
Lítið dæmi: Maðurinn setur þotumótorana í gang fyrir utan húsið sitt, sandblæs pallbíl nágrannans í leiðinni (án þess, að því er virðist, að taka eftir því), feykir mold, ryki og öðru lauslegu um út um allr og veltir næstum ruslatunnunum. Hann er ekkert að pæla í neinu nema þotunni sinni sem er stórfurðuleg Tesla…
Sandblástur fyrir bíl nágrannans. Og ókeypis dreifing á rusli og öðru lauslegu.
Svo dettur honum í hug að prófa að ræsa þotuhreyflana í rigningu og fer á eitthvert bílastæði. Gjörsamlega ómeðvitaður um alla umferðina á stæðinu, setur hann í gang, glóðar einhverjar dúfur sem flögra hálfeldaðar burt frá vítisvélinni.
Nei, þetta er bara ekki í lagi.
Jæja, það er ekki mitt að dæma en þarna leist mér ekki á blikuna. Maðurinn sérstaki heitir Matt Mikka og er, eftir því sem fram kemur á alnetinu, verkfræðingur og bíókarl/kvikmyndagerðarmaður og er mikil stjarna á YouTube því þar eru fylgjendur hans rúmlega milljón.
Hér prófar hann þotumótorana fyrir utan verslunarmiðstöð, bræðir síma hjá einhverjum öryggisverði o.fl.:
Aðrar umfjallanir
Rüsselsheim: Opel hefur í dag afhjúpað nýju, sjöttu kynslóð Astra. Saga þessa mest selda bíls frá Opel hófst fyrir 30 árum með afkomanda...
Ef aðdáendur Ford bregða sér í sýningarsalinn hjá Brimborg geta þeir skoðað sportlegan Ford Puma sem var valinn BÍLL ÁRSINS 2020 af WhatCar...
SEMA-sýningin í Las Vegas sneri aftur úr „Covid-fríi” á þessu ári og er haldin þessa dagana. Bandarísku Stellantis vörumerkin Jeep, Ram, Dodge og Mopar verða áberandi.
Það vita flestir hver Jürgen Klopp er. Meira að segja mestu antisportistar vita að þessi maður tengist knattspyrnu. Hann hefur síðustu tíu árin ekið um á Opel og hafa einhverjir furðað sig á manninum á stationbílnum.