Jeep Wrangler Overlook
SEMA-sýningin í Las Vegas sneri aftur úr „Covid-fríi” á þessu ári og er haldin þessa dagana. Eins og hefð er fyrir koma bandarísku Stellantis vörumerkin Jeep, Ram, Dodge og Mopar með mikið úrval á sýninguna.
Það vekur strax athygli að hugmyndabíllinn er lengri en venjulegur Wrangler. Hann er reyndar heilu feti lengri eða sem samsvarar 30 sentímetrum.
Hann bætir ekki bara við farmrými, heldur bætir hann við farþegarými. Það er þriðja sætaröð í Overlook. Þessi sæti þurftu einnig sérsniðið afturþak í „safarí-stíl“. Það er 12.5 cm hærra en venjulegt Wrangler þak, til að skapa rými fyrir farþega í aftursætum. Það bjó líka til pláss fyrir auka glugga.
Aðrar breytingar á yfirbyggingu fela í sér sérsniðið húdd, mjórri framstuðara til að bæta aðkomuhornið og breikkaðan afturstuðara til að vernda lengra skottið.
Hann fær einnig sérsniðin framstuðaraljós, Jeep Performance Parts (JPP) ljós á A-bitann og hliðarþrep úr rörum.
Overlook er einnig á Jeep Performance Parts (JPP) 2 tommu lyftibúnaði með Fox dempurum og 20 tommu felgum með 37 tommu dekkjum.
En, þetta lítur mjög vel út. Og þegar Land Rover býður nú þegar upp á þriðju sætaröðina í Defender, og vinnur að „teygðri“ útgáfu, eru þeir hjá Autoblog farnir að velta því fyrir sér hvort Jeep ætti að hugsa um enn teygðari Wrangler.
(grein á vef Autoblog – myndir frá Jeep)
Aðrar umfjallanir
Þúvarpið, eða YouTube eins og það er almennt kallað, er ótrúlegt fyrirbæri. Þar ná myndbönd flugi og heimurinn verður sjúkur í eitthvað sem enginn vissi af nokkrum vikum eða mánuðum fyrr. Hér er gott dæmi.
Að sprengja framdekk þegar ekið er á fullri fart er aldrei gaman. En það er ágætt að vera búinn að undirbúa sig í huganum þannig að fyrstu viðbrögð verði ekki þau að stíga á bremsuna. Það gerir vont enn verra!
Þrívíddarprentun opnar nýja möguleika en það er ekki víst að margir átti sig á því hversu miklir þeir möguleikar eru. Fyrst þarf að rífa sig upp úr allskonar...
Það er alltaf gaman þegar fólk segir eitthvað gáfulegt, svo ekki sé talað um þegar það er bæði fyndið og gáfulegt. Þetta tvennt getur farið saman en hér eru dæmi um fleyg orð af vörum bíla„kónga“ á borð við Henry Ford og Enzo Ferrari.