Það hlaut að koma að því: Að framtíð og fortíð hittust á miðri leið! Það gerðist í dag á Samgönguminjasafninu Ystafelli þegar DMC DeLorean kom á safnið ásamt fríðu föruneyti. Eigandinn, Stefán Örn Stefánsson, kom með bílinn góða í flutningabíl að Ystafelli og þar mun bíllinn vera innan um aðra góða og merka bíla.

image

Bíllinn sá er eini sinnar tegundar á landinu og var fluttur inn árið 1998. Árgerðin er 1981 eins og undirrituð sem, eins og bíllinn, telst forngripur en er þó ekki komin á safn. Ekki enn.

En vonandi um ókomna framtíð í anda þessa bíls.

image

Bíllinn lítur vel út og er næsta víst að um hann hefur verið hugsað af mikilli alúð og þannig verður það áfram á Ystafelli þar sem ekkert er ómögulegt.

image

Meira um safnið má lesa hér og svo má auðvitað fara að Ystafelli sem ævintýri út af fyrir sig.

Meðfylgjandi ljósmyndir eru birtar með góðfúslegu leyfi Samgönguminjasafnsins.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is