Enn og aftur er Tesluspæjarinn „okkar“ á ferðinni í námunda við verksmiðjuna í Fremont. Hann er örugglega ekkert voðalega vinsæll hjá framleiðandanum, eftir að hann svipti hulunni af breytingum á Cybertruck í síðasta mánuði. En við (og margir aðrir) kunnum sko að meta kauða!
Einlægi spæjarinn
Þetta er ungur maður frá Suður-Ameríku sem ver drjúgum hluta tíma síns við prófunarbrautina við hina risavöxnu Tesla-verksmiðju í Fremont í Kaliforníu. Hann virðist óskaplega einlægur náungi. Þegar einhver ribbaldi gerði ruddalega athugasemd við eitt af fyrstu spæjaramyndböndum hans (um gæði uppökunnar) man ég að hann svaraði eitthvað á þessa leið: „Þakka þér fyrir ábendinguna. Ég skal æfa mig meira við fínhreyfingar drónans.“
Ekki hefðu margir svarað eins ruddalegri athugasemd og þeirri sem ég vísa í (og tók því miður ekki skjáskot af einlægu svarinu) af viðlíka kurteisi og okkar einlægi spæjari. Og fyrir það á hann mörg raf-stig (það eru hin nýju rokkstig sko) skilið.
Þarna eru þær nokkrar. Skjáskot/YouTube
Enn fleiri stig bætast við fyrir það hversu miklum framförum hann hefur tekið og hér er nýjasta myndbandið hans. Gasalega flott myndband sem sýnir margar fínar Teslur – en það er svo sem enginn hápunktur eða augljós uppljóstrun í myndbandinu. Það þarf ekki alltaf að vera.
Aðrar umfjallanir
Ef fólk hefur ekki séð þetta þá er bráðnauðsynlegt að horfa! Nú, þeir sem hafa séð þetta ættu endilega að horfa aftur því hér er einhver mesta steypa sem völ er á.
Næsta kynslóð rallýkappakstursbíls Toyota er með aflrás sem gerir ökumanni kleift að velja um afldreifingu að framan og aftan eftir því hvað hentar best við ólíkar aðstæður.
McLaren er enn að íhuga að fara inn á jeppamarkaðinn, að sögn eins af æðstu stjórnendum vörumerkisins...
Polestar hefur búið til einstaka mótorsportútgáfu af Polestar 2 rafbílnum. Bíllinn er þróaður og prófaður við býsna svalar aðstæður í Svíþjóð, í námunda við norðurheimskautsbaug.