Nei, það gerðu heldur ekki margir árið 1998 nema kannski einhverjir í Alsír. Þaðan sem ökukapparnir og kappakstursbræðurnir Ralf og Michael Schumacher koma nefnilega. Alla vega að sögn málgagns alsírsku ríkisstjórnarinnar.
Að morgni mánudagsins 2. nóvember 1998, daginn eftir að Mika Häkkinen varð heimsmeistari í Formúlu 1, birtist undarleg frétt í blaðinu El Moudjahid í Alsír. Blaðið, sem var málgagn alsírsku ríkisstjórnarinnar, hélt því fram fullum fetum að bræðurnir Ralf og Michael Schumacher væru hreint ekki eins þýskir og margir héldu. Þeir væru nefnilega frá Alsír.
Fæddir í bænum Blida í Alsír
Skammt frá sjálfum Atlasfjöllum er bærinn Blida. Hann er í tæplega fimmtíu kílómetra fjarlægð frá höfuðborg Alsírs, Algeirsborg. Þetta mun vera hinn huggulegasti bær og rósarækt er þar mikil.
Og þar slitu þeir barnsskónum.
Rúm sex ár eru á milli bræðranna sem fæddir eru 1969 og 1975. Þarna eru þeir litlir guttar, sennilega bara heima hjá sér í Þýskalandi.
Móðirin þurfti að breyta nöfnunum
Samkvæmt frétt blaðsins var hin þýska móðir þeirra gift Alsíringi. Fengu drengirnir nöfnin Farouk og Hassan. Þegar faðir þeirra Farouks og Hassans dó flutti móðir þeirra með þá til heimalands hennar, Þýskalands.
Bræðurnir í gókart. Faðir þeirra, Rolf Schumacher, hjálpaði strákunum af stað en báðir byrjuðu ungir að aka gókartbílum. Michael byrjaði um 6 ára og Ralf enn fyrr.
Núnú, nema hvað að hún lét breyta nöfnunum í einhver svona tiltölulega þýsk nöfn og fékk Farouk, sá eldri, nafnið Michael en Hassan, litli guttinn, nafnið Ralf.
Ekki grín heldur staðreyndir
Víða var greint frá þessari frétt á sínum tíma, enda stórfrétt sem blaðamaður El Moudjahid sagðist heldur betur hafa þurft að kafa eftir. Sú vinna tók hann margar vikur. Þá hlaut það að vera almennileg rannsóknarblaðamennska! Fyrst þetta tók nú margar vikur!
Bræðurnir, sem báðir kepptu í Formúlu 1, hafa eflaust skemmt sér álíka vel og á þessari stundu þegar þeir fengu fréttirnar um eigin uppruna. Alsírska upprunann.
Þessi frétt rataði meira að segja í Morgunblaðið. Þegar heimspressan hafði samband við málgagn alsírsku ríkisstjórnarinnar sagði talsmaður þess að hvorki væri um grín að ræða né platfrétt heldur hreinar og klárar staðreyndir.
Þá hló Michael Schumacher
Það mun víst hafa verið svo að Michael, (eða Farouk?) hafi hlegið dátt þegar honum barst þessi stórfrétt til eyrna. Hann gantaðist með þetta og fannst þetta mjög fyndið. „Því næst fór hann í hádegismat með Jean Alesi, sem krafðist þess að fá að kalla hann Muhammad,“ sagði í fréttum tveimur dögum síðar.
Aðrar umfjallanir
Það eru ekki margir bílar gerðir til að fljúga. Og ekki allir ökumenn hæfir til að aka bílum. Hér er dæmi um bíl sem ekki er gerður til að fljúga og mann ökumann sem ætti kannski að fá sér flugvél.
Þegar fólk kemur á bílasölu eða í bílaumboð er eðlilegt að það prófi bíl eða bíla áður en veskið er tekið upp. Hér rifja tveir gamlir bílasalar upp reynsluakstur tveggja viðskiptavina. „Reynsluakstur sem seint gleymist“ á við í báðum tilvikum.
Á kynningu á IAA Transportation í Þýskalandi í vikunni, hefur kínverski rafbílaframleiðandinn Build Your Dreams (BYD) deilt nýrri rafbílatækni...
Til stóð að frumsýna nýja sportbílinn, IS frá Lexus árgerð 2021 í dag en Lexus hefur tekið þá ákvörðun að fresta stafrænu...