Stundum þyrmir yfir mann og göturnar virðast fullar af ökutækjum sem stjórnað er af vanhæfum ökumönnum. Hér eru tvær sögur sem varpa ljósi á hvernig sumir öðlast ökuréttindi þvert á öll lögmál og svo hið gagnstæða: Þegar ósýnileg öfl virðast grípa í taumana og koma í veg fyrir stórslys.
Áttatíu og fjögurra ára gömul var hún staðráðin í að hún vildi læra að aka bíl. Eftir 300 ökutíma taldi Bernie, ökukennarinn, að enn væri henni ekki treystandi til að aka bifreið og kvaðst ekki reiðubúinn til að „fórna“ bílnum sínum í sjálft ökuprófið. Honum var alls ekki vel við tilhugsunina í það minnsta.
Í ökutímunum var Bernie með krumlunar á stýrinu, reiðubúinn að bregðast skjótt við ef þess gerðist þörf. Ástæðan var nefnilega sú að í hvert sinn sem Edna leit til hliða, fylgdi bíllinn augunum. Ef hún leit til hægri, þá beygði hún til hægri, hvort sem þar væri vegur eður ei. Sama átti við um vinstri.
Bernie var meðvitaður um þetta, og einkum og sér í lagi þá staðreynd að Edna gleymdi sér þegar hún sá fólk á gangi. Þá horfði hún á fólkið og...bíllinn fylgdi augunum!
Edna gafst ekki upp, því bílprófinu ætlaði hún að ná. Sama hvað! Það setti ekki stórt strik í reikninginn þegar Bernie neitaði að leggja til ökukennslubílinn á sjálfan prófdaginn. Edna keypti einfaldlega splunkunýjan bíl og svo reyndi hún við ökuprófið. Þrettán sinnum. Hún náði prófinu í þrettándu tilraun.
Svona sér undirrituð Ednu fyrir sér en þetta er þó ekki Edna. Heldur eldri kona sem ekkert nafn fylgir í myndabankanum Unsplash.
Á innan við viku var Edna reyndar búin að dúndra nýja bílnum aftan á vörubíl en meira vitum við ekki. Hún náði þó prófinu.
Hefur reynt að ná prófinu í 30 ár
En 300 ökutímar eru nú ekki neitt í samanburði við þessa sögu sem næst er í röðinni. Í frétt frá því í ágúst síðastliðnum er sagt frá breskri konu að nafni Isabelle Stedman. Hún er 47 ára gömul og samkvæmt útreikningum reiknimeistarans er hér skrifar þá eru þrjátíu ár síðan hún var sautján ára gömul.
Það var einmitt þá, fyrir þrjátíu árum, sem Isabelle fór í fyrsta ökutímann. Ökunámið skilaði litlu. Nei, það gekk ekki sérlega vel hjá 17 ára gamalli stúlkunni að læra þá list sem akstur bifreiðar er.
Þá er nú vissara að taka fleiri ökutíma og athuga hvort þetta komi ekki. Og það gerði hún. Í ágúst 2021 voru ökutímarnir orðnir eitt þúsund talsins og ekki hafði hún náð bílprófinu.
Óminnisástand og fleira vont
Þúsund tímar kosta sitt og sagði Isabelle í viðtali sem hér er vísað í að hún hafi varið einhverjum þúsundum punda í ökutímana. Hin breska Isabelle ætlar sér að ná prófinu og ekkert fær hana ofan af því. Ekki einu sinni 30 ára saga um að henni sé ekki „ætlað“ að stjórna bifreið.
Mynd af Isabelle Stedman sem farið hefur víða í fréttaflutningi af óheppilegheitunum.
Þetta virðist því miður eiga sér stoð í raunveruleikanum og blessuð konan er fræg að endemum í Bretlandi og raunar um alla Evrópu fyrir þvergirðingsháttinn.
Hringtorgin fá allt til að hringsnúast
Þegar Isabelle nálgast hringtorg bugast hún algjörlega. Hún fær hreinlega kvíðakast (sem er spes því ég hélt það væri löngu liðið yfir blessaða konuna) en hún segir:
Isabell kveðst þrá ökuréttindin svo heitt til að hún geti heimsótt fjölskylduna og skutlað dóttur sinni í háskólann. Já, það er ekki heil brú í þessu, lesendur góðir!
Börnin hennar tvö, Dominic og Stella sækja (í lok ágúst sl.) bæði tíma hjá ökukennara og gengur ökunámið snurðulaust fyrir sig.
Reyndi að ná prófinu fyrir móður sína
Það er gott að blessuð börnin þurfi ekki að bíða lengur eftir að móðir þeirra nái prófinu og til allrar hamingju virðist Isabelle Stedman ekki hafa gripið til óþverrabragða eins og að fá dóttur sína til að taka prófið í sínu nafni.
Mynd/Unsplash
Eitthvað í þá veru var reynt í Kanada fyrir fimm árum síðan. Það er að segja; upp komst um slíka pretti í Kanada fyrir fimm árum síðan en miðað við hversu margir fullkomlega vanhæfir bílstjórar virðast vera í umferðinni hljóta slík svik og prettir að vera algengari en mann grunar. Það kemst bara ekki upp.
Mynd/Unsplash
Kona með þykkt lag af farða og hárkollu á höfði mætti í ökupróf og þóttist vera 73 ára gömul kona. Tilgangurinn var að láta líta út fyrir að þar væri á ferðinni móðir stúlkunnar, 73. ára gömul kona sem ítrekað hefur fallið á ökuprófi
Það fór þó ekki svo að ekkert hefðist upp úr þessu öllu saman. Stúlkan fékk nú eitt og annað fyrir uppátækið og má þar einna helst nefna lögreglukærur, m.a. eina fyrir að villa á sér heimildir, sem víðast hvar flokkast sem refsiverð háttsemi.
Aðrar umfjallanir
Næstu daga munu streyma inn fréttir frá IAA – bílasýningunni í München sem hefst í þessari viku...
Upphituð öryggisbelti eru að koma til að gera vetrarakstur þægilegri...
Mitsubishi dró sig næstum alveg í hlé á Evrópumarkaði, tók meðal annars út vinsælasta tengitvinnbílinn sinn Mitsubishi Outlander PHEV og reyndi að fylla í skarðið með Eclipse Cross. En nýlega tilkynntu þeir að fyrirtækið stefni aftur inn á Evrópumarkað, þannig að við eigum eftir að sjá hvernig það verður.
Liðsstjórinn orðljóti, Guenther Steiner, er í miklu uppáhaldi hjá mörgum, þar á meðal þeirri er þetta ritar. Liðsstjóri Haas hefur staðið í ströngu en hvernig kom hann til sögunnar og varð liðsstjóri?