Breyttur Audi e-tron árgerð 2022
- Andlitslyftur Audi e-tron sést á njósnamynd fyrir væntanlega komu á markað árið 2022
- Uppfærslur Audi fyrir e-tron virðast vera umfangsmiklar, þar á meðal ný framljós og það sem lítur út fyrir að vera enn stærra grill
Audi ætlar að gefa rafdrifna sportjeppanum sínum, e-tron, nokkrar uppfærslur á miðju tímabili bílsins til að halda honum samkeppnishæfum gagnvart fjölda nýrri keppinauta, eða svo sýna nýjar njósnamyndir sem breski bílavefurinn Auto Express birti nýverið.
E-tron var einn af fyrstu stóru rafbílunum frá þessu rótgróna úrvalsmerki, sem kom á markað árið 2018.
En markaðurinn breytist ört og úrvalið verður sífellt fjölbreyttara. Þess vegna eru uppfærslur bráðnauðsynlegar.
Breytingar á útliti
Ytri uppfærslur Audi fyrir þennan andlitslyfta e-tron virðast vera nokkuð umfangsmiklar, ef marka má það sem sést á þessari frumgerð.
Það verður nýr framstuðari, endurhönnuð aðalljós, breyttir sílsar og endurhönnun á afturenda, með nýjum afturljósum.
Hjá Auto Express segjast þeir ekki eiga von á alveg eins mörgum breytingum í bílnum að innan. e-tron er með sama þriggja skjáa upplýsinga- og afþreyingarútlit og Audi A8 bíllinn sem var kynntur nýlega og lesa má um hér – með lítið meira en nokkrum hugbúnaðarbreytingum.
Sennilega óbreytt aflrás
Ólíklegt er að aflrás e-tron fái nema minniháttar uppfærslur. Kaupendur munu samt hafa val um annað hvort 71kWh rafhlöðupakka og 309 hö aflrás í 50-grunngerðinn, eða 95kWst rafhlöðupakka og 402 hö aflrás í 55 gerðinni sem er best.
Meiri drægni
Audi hefur stöðugt verið að betrumbæta hugbúnað e-tron frá því bíllinn kom á markað árið 2018, með það að markmiði að ná sem mestu drægni úr þeirri tækni sem til er.
Nýjasta uppfærsla vörumerkisins gaf 19,5 km til viðbótar frá 95 kWh 55 útgáfunni og jók hámarksdrægni þess bíls í 444 km.
Og þó ekki sé búist við að Audi skipti út rafhlöðupökkum og rafmótorum fyrir þessa uppfærslu, gæti vörumerkið reynt að nýta rafhlöðugetu e-tron sem nú er til, á skilvirkari hátt með því að setja upp afkastameiri varmadælu.
Aðrar umfjallanir
Fiat 500, eða cinquecento er greinilega ítölsk hönnun, líkt og Vespa, ímynd bílsins er almennt tengd Ítalíu. Upprunalega hét Fiat 500, Topolino, sem þýðir að „litla músin“...
Ökumaðurinn Ken Block ætti ekki að vera lesendum Bílabloggs með öllu ókunnugur en hann er þekktur fyrir að aka þar sem aðrir láta sig varla dreyma um og á þeim hraða sem tjah, er vel yfir skynsamlegum mörkum í huga flestra. Til dæmis á Knife´s Edge sem er mjög lýsandi nafn á fyrirbærinu.
Bandaríski rafbílaframleiðandinn Bollinger hefur sýnt aðlögunarhæfa útgáfu af grind með stýrishúsi af B2 pallbíl sínum...