„Eins og margir vita þá er ég bílakarl. Í gegnum tíðina hef ég fengið að aka býsna ótrúlegum ökutækjum, en aldrei hefði ég getað ímyndað mér neitt í líkingu við rafbílinn sem ég prófaði í dag,“ segir forseti Bandaríkjanna á Twitter. Viðbrögðin… já. Þau voru margvísleg.
Og þessu tísti fylgdi: „Rafmagnið er framtíðin - og það verður til einmitt hérna í Ameríku.“
Mynd af forsetanum, kampakátum, aka Hummer (rafbíl auðvitað), var kjarni tístsins. En ef þetta var tíst þá er „púað“ á tístið í athugasemdum sem hlaðast hratt undir litla tíst forsetans. Á einni klukkustund voru nefnilega komnar tvö þúsund athugasemdir við tístið og tuttugu og eitt þúsund létu sér tístið vel líka.
Kátur var hann karlinn, í rafbílnum í gær. Mynd/Twitter/POTUS
Margir virðast tengja við golfbílana
Það er nú ekki uppbyggjandi að lesa athugasemdirnar sem gerðar voru við færslu glaða bílakarlsins. Bílakarlsins sem einnig er forseti sjálfra Bandaríkjana en hefur það óheppilega nafn POTUS á Twitter.
Eftir sem áður leiddi sýnishorn af þeim í ljós að margir þeirra, sem höfðu fyrir því að hreyfa fingur eftir lyklaborðinu með því að skrifa athugasemd, virðast líta á rafbíla sem eitthvað til að aka úti á golfvelli.
Virðing er eitthvað sem lítið fer fyrir þarna og auðvitað er það dapurlegt að sjá. En hvað sem því líður þá er forsetinn bílakarl, meira að segja rafmagnaður bílakarl og það vissi undirrituð ekki fyrr en nú.
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Aðrar umfjallanir
Hann mun skjótast kvartmíluna á 12,9 sekúndum: Hressilegur og vel breyttur Ford F-150, Hennessey VelociRaptor 600, er á leiðinni! Viltu vita meira?
Dýrustu bílar í heimi eru svo miklu meira en tæki til að fara frá A til B. Þessi rúllandi listaverk fela í sér forgangsröðun eina prósentsins í heiminum sem á mest af peningunum, og í þeim alheimi eru töffari og flott framar hagkvæmni og skilvirkni.
Volvo sagt vera nú þegar að horfa fram á veginn til minni bíls, sem gæti fengið nafnið EX30 eða EX40
Það er óvenjuleg spyrna sem við skoðum hér í dag. Fjórir pallbílar; 835 hestafla rafpallbíll, 702 hestafla Hellcat V8, 450 hestafla twin túrbó V6 Ecoboost og í aukahlutverki er sá bíll sem í 30 var hraðastur allra pallbíla. GMC Syclone.