Lewis Hamilton var heldur betur maður helgarinnar í Formúla 1. Keppnin fór fram í São Paulo í Brasilíu og gekk ýmislegt á. Nú virðast ný gögn komin fram um atvik þegar Hamilton (Mercedes-AMG Petronas) reyndi að fara framúr Max Verstappen (Red Bull) á 48. hring keppninnar. Mercedes hefur óskað eftir rannsókn á atvikinu.
Atvik í uppsiglingu í 4. beygju á 48. hring. Skjáskot/YouTube
Rannsókn takk
Í tilkynningu frá Mercedes, sem birt var í dag, kemur fram að liðið hafi formlega óskað eftir að atvikið, sem átti sér stað í 4. beygju 48. hrings, verði endurskoðað í ljósi nýrra gagna sem gætu varpað nýju ljósi á atvikið.
Skjáskot/Twitter/@MercedesAMGF1
Í umræddri beygju ætlaði Hamilton framúr Verstappen en það tókst ekki og nánast snertust bílar þeirra, eða þannig leit það út í sjónvarpstækinu hér í Hafnarfirðinum.
Eru margir á því að þarna hafi Verstappen vísvitandi leikið ljótan leik til að hindra framúraksturinn og hafa miklar umræður spunnist um það. Var hann á gráu svæði fyrir eins og fram kemur m.a. hér .
Skjáskot/Twitter/@sjbrigante
Hamilton náði forystunni á og „stakk“ Verstappen af á 59. hring og sigraði. Nú er stóra spurningin sú hvort Verstappen og Red Bull hafi brotið reglur o.s.frv.
Baulað á ökumann rauða nautsins
Ekki eru sérlega margar vikur síðan Max Verstappen var valinn vinsælasti keppandi Formúlu 1 en það fór lítið fyrir þeim „vinsældum“ eftir keppni sunnudagsins í Brasilíu. Þegar Red Bull karlinn hann Verstappen steig upp á verðlaunapallinn og tók við bikarnum fyrir annað sætið var hreinlega baulað á hann.
Aðrar umfjallanir
Ef einhver heldur því fram að Þjóðverjar fari leynt með húmorinn þá er tímabært að taka þá skoðun til endurskoðunar. Hér er brakandi nýtt og ferskt myndband þar sem T-Class er frumsýndur og þetta er svakalega hressandi svo ekki sé meira sagt!
Margir Íslendingar hafa í áranna rás lagt í ferðir á Spánarstrendur, og „hvíta ströndin“ eða Costa Blanca hefur verið með þeim vinsælli...
Toyota á Íslandi fær glæsilega viðbót í vörulínuna í janúar 2021 þegar Toyota Highlander verður kynntur í fyrsta sinn í V-Evrópu. Þessi bíll hefur notið mikilla vinsælda...
PARÍS - Renault hefur sent frá sér myndir af framleiðsluútgáfu væntanlegs Megane; rafknúnum smábíl í „léttum“ dulbúningi, sem sýndur...