Þeir gerast varla ljótari bílarnir en þessir sem hér eru samankomnir í myndaseríu. Þeir eru svo ljótir að framleiðendur bílanna myndu örugglega ekki bera kennsl á þá þó að mörg lög af hryllingi væru skafin af.
Vont og það venst aldrei
Ef þetta væri nú bara myndasería byggð á gömlu sprelli úr tilraunabílskúr einhvers staðar langt í burtu… þá væri það nú í lagi. En það versta við meðfylgjandi myndir er að þær eru nýjar og sýna flestar bíla sem eru í notkun! Arg!
Er hægt að kaupa frystikistu eða baðkar, skella hjólum undir og fara svo út í umferðina?
Maður spyr sig! En hefst nú hryllingssýningin:
Ætli stóri hafi sest ofan á litla?
Það þarf lítið til að breyta „alltílagi“ bíl í algjört umhverfisslys.
Ofan á hönnunarskandalinn er búið að gera eitt og annað sem lagar bílinn lítið. En takið eftir að hann er á númerum (já, ég „blörraði“ til að enginn reyndi að hafa uppi á eigandanum og kaupa bílgarminn) og er samt með steina framan við dekkin. Við allt þetta má auðveldlega losna (númer, steina og bíl) með einni ferð í pressuna.
Torkennilegt fyrirbæri á bílastæði. Kannski eitthvað úr Transformers?
Afgangar úr bílskúrnum plús fullt af lími.
Týndi hlekkurinn er ekki lengur týndur.
Tengdamömmuboxið vék fyrir „tengda-Ömmuboxinu“.
Svona „hjólbörur“ þykja voða töff sums staðar, held ég. Vonandi er það misskilningur.
Hver röndóttur! Hvað getur maður sagt?
Hér er eins og einhver hafi sett í blandara Hondu Civic, Subaru Impreza, Evo og BMW-merki.
Hann reyndi þó...
Must...arður. Mattur, glansandi, lítill og stór. Æjæj...
Ætli eigandinn sé með gulltennur?
Andstæður takast á og mikið er ég fegin að búa ekki í sama húsi og deila bílastæðinu...
Best að segja bara ekki meir...
Aðrar umfjallanir
Meira að segja Jeremy Clarkson, sleggjan úr Top Gear, var eitt sinn ungur. Eða alla vega yngri. Hér er bráðskemmtilegt 25 ára myndband með Clarkson en hann hafði þá verið einn kynna Top Gear þáttanna í 9 ár.
46 ára kona í Washington í Bandaríkjunum gekk nánast óskrámuð frá þessum „bíl“ eftir að trukkur beinlínis kramdi hann. Upplýsingafulltrúi lögreglunnar hefur séð ýmislegt á löngum starfsferli, en ekkert í líkingu við þetta.
Vulcain Lance XBUS er eitt undarlegt fyrirbæri. Hann er bæði pallbílll og sendibíll sem er 450 kíló og kemst allt að 600 kílómetra á rafmagninu. Nei, hættu nú alveg!
Bílasýningin í Guangzhou 2022 stendur yfir í Kína núna og hófst frekar með látum með miklum eldi í einum af sýningarbásum framleiðenda...