46 ára kona í Washington í Bandaríkjunum gekk nánast óskrámuð frá þessum „bíl“ eftir að trukkur beinlínis kramdi hann. Upplýsingafulltrúi lögreglunnar hefur séð ýmislegt á löngum starfsferli, en ekkert í líkingu við þetta.
„Þegar kranabíllinn lyfti framenda vörubílsins af bílnum, komst konan út án aðstoðar.“
Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi er bíllinn samanbrotinn, rétt eins og hann hafi farið í hina eiginlegu bílapressu.
Var „of nálægt“
Vörubílstjórinn fékk tæplega 200 dollara sekt fyrir að hafa ekið „of nálægt“ bíl konunnar en margir eru rjúkandi illir (á Twitter) yfir því hversu lítilvæg sú sekt er. Of nálægt er eiginlega ekki orðalag sem nær til þess þegar vörubíllinn er beinlínis búinn að kremja fólksbílinn svo rækilega að dekkin nánast koma upp úr þakinu.
Ömurlegur bíll eða frábær?
Eins og oft vill verða, þegar fólk kemst lífs af úr hrikalegum árekstri, hafa skapast áhugaverðar umræður á Twitter, og sitt sýnist hverjum um ágæti bílsins. Nissan Altima.
Myndir/Twitter
Á meðan einhverjir lofa æðri máttarvöld fyrir að hafa skapað menn sem smíðuðu Nissan Altima eru aðror fokvondir og bölva verkfræðingum Nissan fyrir að búa til svona bíl.
Aðrar umfjallanir
Það hafa sennilega flestir heyrt af þeim og margir átt bíla sem þurfti að kalla inn vegna lagfæringar á einhverju atriði að beiðni framleiðanda bíls...
Þar sem fleiri lesendur virðast eiga góðar minningar um gamla Citroën DS en þeir sem eiga miður góðar minningar um hann, þá ætla ég að koma með aðra íslenska kvikmyndasnilld þar sem slíkur bíll fór með hlutverk. Áhættuhlutverk jafnvel.
Það er óhætt að segja að PT Cruiser hafi öðlast frægð fyrir útlitið en fáir vilja hafa slíkt ökutæki fyrir augunum. Einhver hefur áttað sig á að ekki er hægt að gera PT Cruiser álitlegri og með fáeinum barbabrellum kom út sprenghlægilegt fyrirbæri sem gaman er að sjá í ljótleika sínum tæta og trylla í þessu myndbandi.
Performance Wipers færa úðagjafann yfir á þurrkuarmana, sem setur vatnsbunurnar nær framrúðunni...