Hér á landi ættum við nú að vita með nokkurri vissu að seigfljótandi og rauðglóandi hrauneðja lætur það hverfa sem fyrir henni verður. Bíll eða ekki, skiptir ekki nokkru. Ford eða Ferrari? Nei, skiptir engu heldur.
Þessa dagana deilir fólk á veraldarvefnum myndbandi af því þegar Ford Mustang var einmitt á þeim stað sem vellandi hraunkvika var á leið yfir. Skemmst er frá því að segja að bíllinn hvarf. Að eilífu.
Aðrar umfjallanir
Bíllinn á sér vel yfir hundrað ára sögu hér á landi og í upphafi bílaaldar var ekki mikið til af orðum um þá hluti sem í bílnum voru.
Þegar almenningur í Vesturheimi eignaðist „hestlausa vagna“ urðu óhöppin í umferðinni vissulega fleiri og annars eðlis en áður. Ljósmyndarinn Leslie Jones vann fyrir dagblaðið The Boston Herald frá 1917 til 1956. Umferðaróhöpp voru á meðal þess sem hann myndaði.
Það var á þessum degi, 27. janúar, fyrir 123 árum setti belgískur ökumaður, kallaður „Rauði djöfullinn“, hraðamet á rafbíl. Já, gott fólk, það er alveg magnað að maðurinn hafi náð 80.3 kílómetra hraða á klukkustund á rafknúnu ökutæki árið 1899.
Það voru til átta eintök af ofurrafbílnum Rimac Concept One. Það átti eftir að breytast...