Ójá! Það er fallegt hljóðið í þessum V8 Ford Bronco Baja Monster. Bíllinn kemur á markað í Bandaríkjunum 2023 og er sérlega skemmtilega útbúinn. En það sem skiptir mestu hér er hljóðið!
Nánar um hinar ýmsu útfærslur nýs Bronco má lesa hér.
Þessi sem hér sést er með 5,0 l. V8 vél sem skilar um 400 hestöflum. Fá eintök verða framleidd en þetta „Monster“ er eingöngu framleitt til aksturs í torfærum. Hann verður ekki til almenns brúks. Nóg um það í bili.
Meðfylgjandi myndbönd voru birt í gærkvöldi. Hið fyrra er frá Ford Performance og er eins konar kynningarmyndband en seinna myndbandið er frá TFL-Offroad og talar sínu máli.
Aðrar umfjallanir
Margir horfa á það sem galla að rafknúin farartæki eru ekki með hefðbundna vél eða gírskiptingu - nú á að leysa þetta með "sýndarveruleika"...
Austin Mini kom fram á sjónarsviðið árið 1959. Allt fram undir aldamót var hann framleiddur af íhaldssömum Bretum sem ávallt hafa haldið að þeir framleiddu bestu bíla í heimi...
Enginn annar en Kevin karlinn Magnussen hefur skrifað undir samning við Haas-liðið í Formúlu 1. Daninn kemur í stað Rússans Nikita Mazepin sem liðið rifti samningi við sl. helgi.
Á dögunum átti blaðamaður Bílabloggs þess kost að heimsækja alvöru mótorhjólasýningu á Englandi, „The International Classic MotorCycle Show“...