Já, það getur verið erfitt að bíða eftir Tesla Cybertruck, enda hefur framleiðsla dregist allnokkuð. Nú er sagt að bíllinn fari í fjöldaframleiðslu árið 2023 en það er langt þangað til.
Ég er búin að kaupa einn. Hann festist í bréfalúgunni. Það er sjaldnast góð byrjun þegar það fyrsta sem nýi bíllinn gerir er einmitt að festast. En hvað um það. Ég er ekki sú eina sem á erfitt með að bíða.
Bíllinn minn, eftir að mér tókst að losa hann úr bréfalúgunni. Hann var rispaður í pakkanum þannig að lakkskemmdir skrifast ekki á póstinn í þetta skiptið. Mynd/MB
Tesla-klúbburinn í Kísildal (Silicon Valley) gat ekki hamið sig og skar út Cybertruck í grasker. En það eru nú fleiri grasker sem orðið hafa að bílum, t.d. í ævintýrum á borð við Öskubusku. Held ég.
Mynd/Twitter/Tesla Silicon Valley Club
Svo var það einhver óþolinmóður sem reyndi að „baka“ sér Cybertruck. Þeir sem eru á þeirri skoðun að bíllinn sé ljótur ættu að fagna þessum bakstri því eflaust þykir mörgum útkoman taka útliti bílsins sjálfs fram.
Mynd/Twitter/Sensarpensar
Enn aðrir ganga svo langt að umbreyta annarri tegund í eitthvað sem í myrki kann að minna á Cybertruck. Þetta fyrirbæri kom einn Tesla-karl auga á í Ameríkunni stóru í gær. Mynd/Twitter/jgrano305
Börn „klæddu sig upp“ sem Cybertruck á hryllingsdeginum er hrekkkjavaka nefnist. Hvort þau hræddu marga í búningunum veit maður ekki.
Hér er mynd af búningum barnanna (nei, þetta er áður en þau „klæddu“ sig í þá, engar áhyggjur). Ekki kann ég við að birta myndir af börnunum þó svo að pabbi þeirra hafi gert það. Til að skoða meira þá er hægt að finna SimonMahan á Twitter. Eða láta myndirnar af búningunum duga. Mynd/Twitter/SimonMahan
MegaBlock kubbar urðu að Cybertruck. Mynd/Twitter/mearn
Segja einhverjir, kannski beturvitar, ég veit ekki betur, að best sé að panta Cybertruck sem fyrst því nú þegar hafi 1,2 milljónir slíkra bíla verið pantaðar og verðið hafi hækkað um 4000 dollara frá áramótum.
En biðin, tjah, hún verður löng hvort sem fólk pantar núna eða fyrir löngu. Lifi maður ekki þann dag að aka Cybertruck í fullri stærð þá á ég alla vega mitt eintak sem ég losaði úr bréfalúgunni um daginn.
Ljúkum þessari grein á myndbandi manns sem bjó til sinn eigin fjarstýrða Cybertruck. Segið svo ekki að Cybertruck-fólkið nýti ekki sköpunarkraftinn á meðan beðið er!
Aðrar umfjallanir
Með aukinni rafbílavæðingu má sjá að hönnun hins hefðbundna fólksbíls er að breytast – og það hressilega! EV9 er gott dæmi um það en bílnum bregður fyrir í myndum og myndböndum frá framleiðandanum.
Tesla opnaði nýlega eina af Supercharger stöðvum sínum í Hollandi fyrir aðrar rafbílagerðir en Tesla. Hingað til er ekki annað...
Getur golfbíll verið töff? Í fljótu bragði má ætla að svarið sé „nei“ því golfbílar eru flestir áþekkir smáum götusópum, án sóps og sogbúnaðar.
Fyrrum formúluökumaðurinn Mika Häkkinen er mjög fyndinn náungi. Í gær birtist góð samantekt af því sniðuga sem hann sagði í þegar hann keppti í Race of Champions í síðasta mánuði. Ef orðin eru ekki fyndin þá eru svipbrigðin alveg nógu góð til að fá mann til að brosa í góða stund eftir áhorf.