• Ford F-150 árgerð 2021 mun segja þér hvenær þú hleður bílinn þinn of mikið
    • Vog á pallinum og „snjallkrókur“ eru frábærar græjur fyrir þá sem draga stöku sinnum og setja farm á pallinn
    • Stundum „uppfæra“ bílaframleiðendur bílana sína frá því að þeir eru frumsýndir og bæta við eiginleikum sem nýtast vel í dagsins önn

Eftir að F-150 kom fyrst á markað sem árgerð 2021 náði Ford að lauma inn nokkrum eiginleikum sem voru ekki alveg „fullbakaðir“ þegar uppfærði pallbíllinn fór fyrst í sölu síðastliðið haust.

image

Hér má sjá hvernig þyngdarmæling birtist á skjánum í mælaborðinu

Vogin sem er um borð í bílnum er um það bil eins snjöll og eiginleikar geta verið og það leysir það sem Ford segir vera ein algengustu mistökin sem pallbílaeigendur gera: rangt mat á því hversu mikið þeir geta dregið á öruggan hátt. Innbyggða vogin nota þessa skynjara sem eru festir á undirvagninn til að mæla fjöðrunarbúnað á hverju horni, þar sem búnaðurinn túlkar þetta sem heildarþyngd og sendir yfir í nýtt Sync 4 app, sem gerir þér kleift að fylgjast með heildarþyngd pallbílsins á móti hámarksþyngdinni til að ganga úr skugga um að þú sért innan hæfilega öruggs heidlarþunga.

image

Hér sést að það logar á 3 LED-ljósum í afturljósinu, sem sýnir að hámarksþyngd er ekki enn náð.

Kerfið finnur út hve mikið er búið að hlaða bílinn og mundu að það snýst ekki bara um þyngdina á pallinum. Farþegarnir eru einnig teknir með inn í útreikningana og þú getur tengt farþegana við mælinguna til að láta pallbílinn vita að þú ætlar að bæta við nokkur hundruð kílóum af manneskjum áður en allt er komið. Og til að auðvelda þér að finna út hve mikið er búið að hlaða bílinn áður en komið er að hámarki?

Ekkert mál. Í afturljósum F-150 eru LED framvindustika sem sýna hversu mikið þú hefur hlaðið hingað til; efsta ljósið blikkar þegar þú hefur farið yfir markið (eða hámarks hleðslugetu).

image

Hér er hins vegar komið að hámarksþyngd – öll ljósin 4 loga.

Það er þó ekki eina leiðin til að þyngd komi þér í vandræði með pallbíll, og þar kemur „snjallkrókurinn“ (Smart Hitch) til sögunnar. Snjallkrókurinn gerir það fyrir eftirvagninn sem vogin um borð gerir fyrir þyngdina á pallinum. Uppsetning Smart Hitch í Sync 4 appinu krefst þess að þú sláir inn heildarþyngd eftirvagnsins þíns til að kerfið virki.

image

Hér eru upplýsingar um álagið á dráttarkúluna sýndar á skjánum. Græna svæðið sýnir að álagið er innan tilætlaðra marka.

Þegar þú stillir hleðsluna á eftirvagninum uppfærir snjallkrókurinn skjáinn í rauntíma og eins varðandi vogina um vorð mun krókurinn eða appið sýna þér hvernig þetta er með því að nota LED-ljósin aftan á vörubílnum. Neðri ljósin gera þér kleift að láta þig vita að þyngdarálagið er of lágt; efra ljósið gefur til kynna að álagið sé of hátt.

Í stuttu máli, það væri hægt að gera það með nokkurri nákvæmni, en hversu mikið gildi hafa þær upplýsingar ef ökumaðurinn er þegar kominn út í umferðina?

Innbyggð vog og snjallkrókur eru sett saman í pakka sem er fáanlegur á mörgum búnaðarstigum Ford F-150. Það fer eftir því hvaða búnaðarstig þú velur og hvernig þú tilgreinir pallbílinn við kaupin, þú gætir þurft að bæta við einum af dráttarpökkum F-150 til að fá góðgætið.

(grein á vef Autoblog)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is