Það er ekki ónýtt að fá að kíkja í „leyniskúrinn“ í höfuðstöðvum Audi í Ingolstadt í Þýskalandi. Fáum er boðið í heimsókn í þann skúr og enn færri fá að prófa þá sögulegu bíla sem þar eru varðveittir.
Maður má víst ekki gúffa alla kökuna í sig í einu og heldur ekki horfa á (og hlusta auðvitað!) of marga ofurbíla í einu því það gæti eitthvað gefið sig innra með manni. Þess vega er best að taka bara tvo bita og tvo bíla í einu.
Í þessum hluta sögunnar (myndbandsins) prófar Block ekki ómerkari bíla en Audi V8 DTM frá 1990 og Audi E-tron Vision Gran Turismo 2018. Þetta er bíll sem mörg okkar hafa komist í „námunda við“ með aðstoð PlayStation en nær kemst maður ekki svo auðveldlega.
Kátur er hann Ken Block. Hann er örugglega mjög skemmtilegur maður! Mynd/Audi
Nóg um það! Myndbandið segir allt sem segja þarf en rétt er að geta þess með tilliti til þeirra sem hafa nauma athygli, eða nauman tíma, að Ken Block setur fyrri græjuna í gang á mínútu 5:40.
Aðrar umfjallanir
Þó að við sjáum ekki sportbíla í ljósum logum á íslenskum vegum þá er það víst raunin úti í hinum stóra heimi. Þar kviknar í ofursporturum furðulega oft miðað við aðra bíla en hér útskýrir klókur náungi hvaða skýringar kunna að liggja að baki.
Eitt af því sem bílaspæjarar leggja töluverða áherslu á er að gefa ekki upp nákvæmlega hvar þeir fylgjast með prófunarbílunum. Nú er verið að prófa 2022 BMW M3 Touring í brakandi vetrarkulda í Árjepluovve í Lapplandi. Spæjarinn klikkaði á einu skilti en það er nú í lagi!
Hjón sem búa í Worcester á Englandi hafa verið með eindæmum óheppin hvað bíla snertir, eða öllu heldur búsetu og bíla. Orðið „óheppni“ nær tæplega yfir það sem um ræðir en einhvern veginn er ekið fáránlega oft á bíla þeirra framan við heimilið.
Dacia frumsýnir í Munchen nýjan Jogger sjö sæta fjölskyldubíl, sem verður fyrsta blendingsútgáfan frá þeim...