Eitt af því sem bílaspæjarar leggja töluverða áherslu á er að gefa ekki upp nákvæmlega hvar þeir fylgjast með prófunarbílunum. Nú er verið að prófa 2022 BMW M3 Touring í brakandi vetrarkulda í Árjepluovve í Lapplandi. Spæjarinn klikkaði á einu skilti en það er nú í lagi!
Það eru átta kílómetrar, eins og segir á skiltinu, til Arjeplog en þar búa, samkvæmt nýlegri talningu, 1822 manneskjur. Skjáskot/YouTube
Það er nefnilega ekkert launungarmál að BMW er með prófunarsvæði við Arjeplog í Svíþjóð. Eða Árjepluovve eins og það útleggst á samísku. Prófunarsvæðið hefur verið notuð síðan 2006 og er þetta í raun eins og agnarsmátt þýskt þorp frá nóvember til apríl á hverju ári því um 100 þýskir starfsmenn BMW halda þar til og framkvæma „kuldalegar“ prófanir.
Þýskir bílar, þýsk númer, skilti á þýsku (þó ekki alveg öll) og alles gut þarna í Lapplandi. Skjáskot/YouTube
Ætli einn góður kostur (fyrir utan veðurfarið) sé ekki einmitt sá að bílaspæjararnir þurfa að vera ansi þrjóskir til að stunda spæjarastörf á þeim slóðum. Þetta er nefnilega bara 55 km frá norðurheimskautsbaug og síður en svo í alfaraleið.
Bílaspæjarinn, sem er þýskur, kom alla leið frá Frankfurt í Þýskalandi, norður á „hjara veraldar“ til að spæjast. Það hlýtur að segja okkur að það sé nokkuð upp úr spæjaradjobbinu að hafa. En þetta snýst auðvitað um BMW og mörg okkar væru alveg reiðubúin til að gera eitt og annað þegar sú tegund er annars vegar.
Ástæðan fyrir því að undirrituð gerir mikið úr þessu með leyndina í kringum prófunarstaðinn er sú að það eina sem gefið er upp er að þetta sé einhvers staðar í Skandinavíu, ekki langt frá norðurheimskautsbaug. Þetta er nú aðallega grín af minni hálfu en Þjóðverjinn sem gerir myndböndin er ekki mikill grínari, enda er líf bílaspæjarans síður en svo eitthvert grín, eins og lesa má um í greininni Líf bílaspæjarans.
Prófunarökumennirnir virðast hissa að sjá ókunnugan mann þarna úti í kuldanum. Skjáskot/YouTube
Auðvitað brást honum ekki bogalistin í raun og veru! Myndbandið er flott og prófunarökumennirnir eru svo gapandi gáttaðir að sjá manninn með myndavélina að þeir reyna ekki einu sinni að aka yfir hann.
Bíllinn, M3 Touring, lofar góðu en best er að horfa á hann og hlusta í meðfylgjandi myndbandi.
Aðrar umfjallanir
Nýr Peugeot hugmyndabíll verður frumsýndur í ársbyrjun 2023 og mun forsýna hönnun framtíðarbíla frá franska vörumerkinu...
Mercedes-Benz mun vera með stóra skjái í væntanlegum EQS lúxusbíl með aðeins notar rafhlöður, sem munu veita Tesla Model S harða...
GAUTABORG, Svíþjóð – 22. desember 2021. Polestar, hreinræktaður, hágæða rafbílaframleiðandi, hefur nú innleitt Vivaldi vafra í Polestar 2. Sem svar við óskum...
Vinur minn horfði út um gluggann á skrifstofunni hjá mér og sagði: „Síðasta bílafíflið er ekki fætt sé ég. Hver kaupir sér svona fáránlegan bíl?“ Ég leit upp og sagði: „Það er nú bara ég.“