Þeir sem fylgdust með rallinu í Finnlandi um helgina þurftu oft að góna upp í loftið, rétt eins og þeir væru staddir á flugsýningu. „Jumpin“ eða stökkin á sérleiðunum geta verið alveg hreint mögnuð, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum og myndbandi.

image
image

Þeir Elfyn Evans (ökumaður) og Scott Martin (aðstoðarökumaður) unnu sætan sigur á Toyota Yaris WRC en þeir keppa fyrir Toyota Gazoo Racing (TGR).

image

Keppnisliðið, Toyota Gazoo Racing, er afar stolt af sínum mönnum en ljósmyndirnar eru frá TGR sem skýrir af hverju engar aðrar tegundir bíla eru á myndunum!

image

image
image
image
image

image
image

Ljósmyndir: TOYOTA GAZOO RACING

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is