Það var greinilegt að margir höfðu áhuga á því að skoða hvað væri í boði þegar ÍSBAND, umboðsaðili Jeep og RAM á Íslandi var með glæsilega og rafmagnaða jeppasýningu í gær, laugardaginn 2. október.
Málin rædd hjá Ísband á laugardaginn.
Það var Jeep Wrangler Rubicon 4xe í Launch Edition útgáfu sem vakti einna mesta athygli. Þetta er sérlega öflugur og vel útbúinn jeppi sem hefur svo sannarlega slegið í gegn. Með alls 373 hestafla vél og 670 Nm í togi, 100% driflæsingum að framan og að aftan og með aftengjanlegri jafnvægisstöng að framan. Mikið hefur verið um það að Wrangler Rubicon sé breytt, og býður Breytingaverkstæði ÍSBAND upp á fjölbreytt úrval breytingapakka með 35”, 37” og 40” breytingum. 37” og 40” breyttir Wrangler Rubicon 4xe voru á sýningunni.
Jeep Compass 4xe var sýndur í þremur útfærslum; í Limited og Trailhawk útfærslum sem nú þegar hafa vakið verðskuldaða athygli íslenskra bílakaupenda og einnig frumsýndi Ísband Compass S, en hann kemur til landsins síðar á árinu.
Glæsileg og sportleg útfærsla Jeep Compass S, með panorama glerþaki og á 19” felgum. Bíllinn verður til afhendingar síðar á árinu.
RAM 3500 pallbílarnir voru einnig til sýnis. Líkt og með Jeep þá býður breytingaverkstæði ÍSBAND upp á breytingapakka fyrir RAM með 37” og 40” breytingum, en sjá mátti 40” breyttan RAM í sýningarsalnum.
Aðrar umfjallanir
Hvað fær fólk til að kaupa einhvern tiltekinn bíl? Hvort auglýsingar vegi þar þungt eður ei er ekki gott að...
Þetta er kannski of einföld spurning því svarið er augljóst, býst ég við. En já, það er nú þannig að það er aldrei of mikið af krómi og aldrei of mikið af osti!
BMW mun opinberlega afhjúpa aðra kynslóð BMW 4 seríunnar á morgun, þriðudaginn 2. júní, en myndir sem lekið var á netið sýna nýja hönnun coupé-bílsins að utan...
Söfnun klassískra bíla hefur alltaf haft yfir sér ákveðið yfirbragð og það virðist þeir sem eru með djúpa vasa eru nú komnir með enn...