Besta akstursíþróttafólk heims kemur almenningi oftar en ekki fyrir sjónir sem svakalega alvarlegt og einbeitt fólk. Skárra væri það nú ef Lewis Hamilton væri ekki einbeittur á brautinni í Formúlu 1, svo dæmi sé tekið. Þá myndum við ekki vita hver hann er.
Innvígsla nýrra ökukennara
Fyrir nokkrum árum kom upp sú hugmynd í ökuskóla nokkrum úti í heimi, að bjóða nýráðna kennara, velkomna til starfa við skólann með „dálitlu“ sprelli.
Gamall karl með hatt
Rallýkappinn norski, Petter Solberg, er ekki sérlega gamall. En fyrir fimm árum síðan brá hann sér í hlutverk gamals manns. „Gamli maðurinn“ sem ók um á Mercedes-Benz AMG C63 hringdi eftir aðstoð bifvélavirkja bílaframleiðandans og kvartaði yfir undarlegu hljóði í bílnum.
Hér er myndbandið með þeim „gamla“:
Stórvarasamur starfsmaður á þýsku verkstæði
Margfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Sebastian Vettel, skemmti sér konunglega í hlutverki luralegs bifvélavirkja fyrir fáeinum árum. Honum tókst næstum að hræða líftóruna úr saklausum viðskiptavinum á þýsku verkstæði. Gjörið svo vel:
Hláturinn lengir lífið
Vonandi kom þetta sprell ykkur, lesendur góðir, í jafngóðan gír og undirritaðri. Jújú, þetta eru „eldgömul“ myndbönd og örugglega margir búnir að horfa á þau.
Ráðlegging blaðamanns er eftirfarandi: Horfið bara aftur á þetta!
Ef hláturinn lengir lífið þá er þetta eðalfínt efni til að bæta nokkrum mánuðum við lífið!
Aðrar umfjallanir
Það hefur fylgt Land Cruiser bílum Toyota hversu sterkir og vel byggðir þeir eru. Við sögðum fyrir skömmu frá nýjustu gerð Land Cruiser 30...
Jæja, allir í Don Cano gallana og strákar mega endilega vera með sítt að aftan! Og stelpur líka. Snjóþvegnar gallabuxur eru velkomnar. Ferðinni er heitið til ársins 1986! Það er nefnilega afmæli.
Þetta er kannski of einföld spurning því svarið er augljóst, býst ég við. En já, það er nú þannig að það er aldrei of mikið af krómi og aldrei of mikið af osti!
Margir horfa á það sem galla að rafknúin farartæki eru ekki með hefðbundna vél eða gírskiptingu - nú á að leysa þetta með "sýndarveruleika"...