Eitt rafmagnað heimsmet í viðbót
Mate Rimac og hans lið er statt í Ameríku að kynna Rimac Nevera. Drag Times greip tækifærið, prófaði bíllinn og setti nýtt heimsmet í kvartmílu á Nevera sem er framleiðsubíll (production car) þ.e. bíll sem er gerðarviðurkenndur sem þýðir að þú getur keypt bílinn og skráð hann beint á götuna. Þetta er opinbert kvartmílumet sett á alvöru kvartmílubraut með löglegum græjum.
Tíminn var 8,582 sekúndur og hraðinn 167,51 mílur á klukkustund það er u.þ.b. 269,581213 km/klst.
Hlustið vel á það sem prufuökumaður Rimac Miroslav Zrnčević segir í myndbandinu hér fyrir neðan um bílinn það er gríðarlega margt merkilegt sem hann hefur að segja um Nevera.
Næst verður Rimac Nevera og Tesla Plaid att saman. En eins og Mate Rimac hefur áður sagt: Sorry Mr. Musk but Nikola Tesla was born in Croatia“. En Nikola Tesla fann um rafmagnsmótorinn.
Þetta verður athyglisvert þó annar bíllinn sé fjögurra dyra bíll og hinn svokallaður hypercar.
Aðrar umfjallanir
Laugardaginn 3. desember frumsýnir Hekla ID. Buzz Pro og ID. Buzz Cargo...
Við erum alltaf að dást að bílum. Reynsluakstur og greinar eru okkar ær og kýr hér á vefnum. Þegar nýjum bíl er reynsluekið í dag reiknum við með að framleiðandinn hafi unnið...
Nýliðna helgi héldu Landrover eigendur sína árlegu sumarhátíð í Húnaveri. Það var margt um manninn og margt...
Þegar David MacNeil keypti Ferrari 250 GTO 1963 árið 2018, greiddi hann 70 milljónir dollara fyrir bílinn, sem varð í raun dýrasti bíll í heimi. Sjaldgæft eintak - með aðeins...