Hvað er hægt að lesa úr merkingunum á hjólbarðanum?
Hjólbarðar eru eitt veigamesta öryggistæki bíla, því öryggi okkar í umferðinni byggist að miklum hluta á því hvernig hjólbörðum bíllinn er búinn; hvort þeir séu af réttri gerð og stærð, og snertiflötur þeirra við yfirborð vegarins sé í lagi.
Gagnlegar upplýsingar
Það er ýmsar gagnlegar upplýsingar að finna á hliðarvegg hjólbarða. Við fyrstu sýn geta merkingarnar virst flóknar, en merkingarnar veita allar nauðsynlegar upplýsingar sem þú hefur áhuga á. Merkingin felur í sér nafn á viðkomandi hjólbarða, en einnig röð af tölum og bókstöfum sem lýsa álagstölu, hraðamati, stærð, smíði og margt fleira.
Hvar getur þú fundið allar mikilvægar upplýsingar um hjólbarða bílsins?
Jafnvel þótt ekki séu allar mögulegar merkingar skráðar á hjólbarðann, finnur þú allar viðeigandi stærðir og viðmið á hliðarvegg hjólbarðans til að ákvarða hvort hjólbarðinn henti viðkomandi ökutæki.
Stærð, breidd og þvermál dekkja
Til að komast að því hvaða dekkjastærð hentar bílnum þínum skaltu skoða merkið á hliðarvegg hjólbarðans.
Þvermál á felgu er ákvarðað skálínu frá brún að brún, mælingin er venjulega gefin í tommum - í þessu tilfelli er hún 16 tommur.
Hjólbarðamerkingin R, sem kemur á undan stærðarmerkingunni, þýðir að þetta dekk er radialdekk. Önnur dæmi eru „B“ fyrir „bias“ eða skálínuhönnun eða „D“ fyrir „diagonal“, sem er nánast ekki lengur að finna í hjólbörðum á fólksbílum.
Skáhjólbarðar hafa komið í stað gegheilla hjólbarða og eru harðari í heildina vegna skálaga borða í hjólbörðunum.
Borðarnir í belg hjólbarðans eru settir hornrétt á akstursstefnu og samanstanda af nokkrum lögum úr dúk úr næloni og stáli, sem gleypa titring og ójafnvægi sérstaklega vel.
Lesið úr merkingum hjólbarða
Við erum aðeins búin að skoða merkingar á hjólbörðum, en markmið okkar er að tryggja að þú getir lesið merkingarnar á hliðarvegg hjólbarðans hvenær sem er. Við munum hér á eftir fara yfir hvað tölurnar og bókstafirnir standa fyrir og sýna þér hvernig hægt er að lesa úr merkingunum með eftirfarandi dæmi:
Byrjum á eftirfarandi röð dekkjamerkinga sem dæmi: 225/45 R 18 95 H
1. Breidd hjólbarða
Fyrsta talan sem birtist í röðinni er „225“. Þessi tala er nafngildi á breidd hjólbarðans (í millimetrum) frá einum hliðarvegg til annars.
2. Stærðarhlutfall
Eftir skástrikið er næsta tala í röðinni „45“. Þessi tala er stærðarhlutfall hjólbarðans - í meginatriðum hæð á sniði hjólbarðans út frá brúninni táknuð sem hlutfall af breidd hjólbarðans.
3. Gerð hjólbarðans
Næst í röð hjólbarðamerkinga okkar er bókstafur í stað tölu. Þessi bókstafur gefur til kynna gerð smíðarinnar sem er notuð í belg hjólbarðans, sem í dæminu okkar er „R“ fyrir Radial smíði. Önnur dæmi eru „B“ fyrir „bias“ eða „D“ fyrir skábyggingu (diagonal).
4. Þvermál felgu
Talan „18“ í dæminu okkar táknar þvermál hjólbarðans í tommum.
5. Álagsþol
Talan á eftir þvermáli felgu táknar álagsþol hjólbarðans. Í okkar dæmi, „95“ er kóði fyrir hámarksálag sem hjólbarðinn getur borið þegar hann er að fullu uppblásinn.
6. Hraðaþol
Síðast í röðinni okkar komum við að hraðaþolinu. Stafir á bilinu A til Z tákna hraðann. Hver bókstafur táknar hámarkshraða sem hjólbarði getur haldið við ráðlagðan burðargetu. Í dæminu okkar jafngildir „H“ hámarkshraða 209 km/klst (130 mílur).
Þrátt fyrir að hjólbarði geti virkað rétt á þessum hraða ættu ökumenn ekki að fara yfir lögleg hámarkshraða.
Viðbótarmerkingar
Eftir þessa upplýsingaröð geta aðrir stafir og tákn einnig verið til staðar á hliðarvegg hjólbarðans.
Í dæmi okkar tákna þeir eftirfarandi:
- 7. Hjólbarði sem hægt er að aka eftir að hann hefur sprungið (Run-flat): Hægt er að nota þessa gerð hjólbarða (SSR) hjólbarða ef þrýstingur tapast, vegna þess að hjólbarðinn er með sérstyrktum veggjum.
- 8. Lykill að upprunalegum búnaði: Hjólbarðurinn er Mercedes Original Equipment hjólbarði með „run-flat“ eiginleika (MOE).
- 9. M+S lýsir því að dekkið henti vel við akstur í aur og snjó.
- 10. DOT kóði: Í samræmi við öryggisstaðla bílaeftirlits hjá bandaríska samgönguráðuneytinu (DOT).
- 11. Framleiðsluvika: 36.
- 12. Framleiðsluár: 2016.
Aðrar mikilvægar merkingar
Eins og þú sérð á yfirliti okkar eru einnig aðrar mikilvægar merkingar á hjólbörðum.
Snúningsátt
Þú getur einnig greint stefnu sem ætlast er að hjólbarðinn snúist í, sem merkir hjólbarða með sérstöku slitlagi með ör ásamt hugtökunum „snúningur“, „snúningsstefna“ eða „átt“ og gefur til kynna í hvaða átt dekkið verður að vera fest.
M+S
M+S stendur fyrir leðju og snjó og gefur til kynna að dekkið henti vel í vetrarveðri með snjóþungum eða drullugum vegi. M+S táknið er hins vegar ekki eingöngu fyrir hliðarveggi vetrardekkja, heldur er það einnig að finna á heilsársdekkjum.
Slitvísir
Dekk hafa slitvísi sem er merktur með bókstöfunum „TWI“ (slitlagsvísir). TWI er stimplað á nokkra staði á dekkinu, sem gerir það auðvelt að sjá slit hjólbarðans miðað við slitlagið í sömu hæð.
Hjólbarðamerkingar Evrópusambandsins
Á vef Félags Íslenskra bifreiðaeigenda er að finna eftirfarandi upplýsingar um merkingar Evrópusambandsins sem eiga að auðvelda bíleigendum að velja réttu hjólbarðana fyrir bílinn sinn.
Merkingar fyrir hjólbarða sem hafa þann tilgang að hjálpa neytendum að velja réttu sumar- eða vetrarhjólbarðana eru orðnar að lögskyldu. Allir hjólbarðar skulu vera með nýju merkingunum og gilda þessi Evrópulög einnig á Íslandi.
Merkingarnar eru auðlæsilegar enda byggjast þær á sömu hugsun og alþekktar merkingar á t.d. þvottavélum og fleiri heimilistækjum.
Þær sýna eins konar þrepaskiptingu og hvað varðar eiginleika í bleytu þá táknar hvert þrep niður á við aukna hemlunarvegalengd upp á allt að sex metra miðað við nauðhemlun á 80 km hraða.
Sparneytni – minna vegviðnám
- Sterkust og veikust: A til G, sparar allt að 5 fulla eldsneytistanka á endingartíma dekkjanna*
- Samliggjandi flokkar: B og C, sparar 0,1 l/100 km*
Vegviðnám hjólbarða hefur áhrif á eldsneytisnotkun, endingartíma og losun koltvísýrings vegna slits á dekkjum. Vegviðnám er 20% af eldsneytisnotkun bílsins.
Þeim mun minna vegviðnám, því minni eldsneytisnotkun. Munurinn á eldsneytisnotkun milli flokkanna (A-G) er umtalsverður, eða um 0,6 l/100 km.
Þau dekk sem hafa minna vegviðnám eru einnig með 14g/km lægri útblástur á koltvísýringi. Á endingartíma dekkjanna er munurinn á eldsneytisnotkun því 5 fullir eldsneytistankar (240 lítrar).
Veggrip í bleytu – aukið öryggi
- Sterkasti og veikasti flokkur: A til F. Hemlunarvegalengd meira en 18 metrum styttri
- Samliggjandi flokkar: B og C: Hemlunarvegalengd styttri sem samsvarar einni bíllengd
Fyrir sumardekk er grip í bleytu sérstaklega mikilvægt þegar kemur að öryggi.
Hjólbarðar með mjög góðu veggripi hafa styttri hemlunarvegalengd, rása minna og gera stjórn ökutækis auðveldari. Merkingin gefur til kynna hemlunarvegalengd hjólbarðans á blautu malbiki á 80 km/klst.
Veghljóð – hljóðstyrkur
- 3 svartar hljóðbylgjur = Fer yfir fyrirhuguð leyfileg mörk ESB (75 dB)
- 2 svartar hljóðbylgjur = Samsvarar fyrirhuguðum leyfilegum (72dB) mörkum
- 1 svört hljóðbylgja = Meira en 3 dB minni hljóðstyrkur en fyrirhugaðar reglugerðir ESB kveða á um (69 dB eða minna).
Gildið fyrir veghljóð gefur til kynna þá hljóðmengun sem hjólbarðar valda. Það veghljóð sem ökumenn sjálfir heyra er ekki tekið með í reikninginn.
Of slitinn hjólbarði er hættulegur
Í lokin er ágætt að undirstrika enn og aftur að of slitnir hjólbarðar eru hættulegir. Þeir missa veggrip í bleytu og hálku og hemlunarvegalengdin eykst mjög mikið sé hjólbarðinn orðinn of slitinn.
Munum eftir því að snertiflötur hjólbarða á meðalstórum fólksbíl er aðeins lófastór blettur og þess vegna ríður á að slitflötur hjólbarðans sé í góðu lagi.
Á þessari mynd má sjá hvaða áhrif loftþrýstingur hefur á snertiflöt hjólbarðans. Lengst til vinstri er hjólbarði með réttum þrýstingi, allur hjólbarðinn er með fullt grip á yfirborði vegarins.
Í miðjunni er hjólbarði með of mikinn þrýsting, hér er að rétt miðja hjólbarðans sem er með grip á vegyfirborðinu.
Lengst til hægri er hjólbarði með of lágan þrýsting og þá eru það ytri brúnir hjólbarðans sem eru með grip á veginum, en miðjan ekki.
Aðrar umfjallanir
Það er ekki sérlega langt síðan að Volvo lét nokkra splunkunýja bíla falla niður úr krana sem hífði bílana í nokkra hæð. Sá gjörningur var fyrst og fremst til að kanna áhrif slíks...
Það hlýtur að vera óþolandi að fá bíl í tékk og það fyrsta sem þarf að gera er að dæla eldsneyti á kvikindið. Það er sennilega of algengt á verkstæðum heimsins. Það er á meðal efnis í vikuskammti af verkstæðisvitleysu auk bíleigandans sem heyrði „ding“ þegar hjöruliður gaf sig og meira til.
Þá er komið að því að kynna betur bílinn sem frumsýndur var í beinni útsendingu í gær: Skoda Enyaq Coupe. Rafbíllinn sá er með drægni allt að 545 kílómetra.
Stórmerkileg grúppa á Facebook, sneisafull (samt pláss fyrir fleiri) af sérfræðingum um rússajeppana á Íslandi og notalegt afdrep á oft hringiðukenndum samfélagsmiðlinum. Mikið rétt, þetta er grúppan Rússajeppar á Íslandi.