Rannsókn sýnir: rafbílar kosta meira í þjónustu en hefðbundnir bílar
- Vefsíðan We Predict í Bandaríkjunum skoðaði þjónustu á um 19 milljónum ökutækja á milli áranna 2016 og 2021
Mörg okkar langar í rafbíl, mörgum finnst þeir of dýrir – enda kosta þeir aðeins meira en bílar með hefðbundnum brunavélum. Við vitum að það er hægt að spara sér útgjöld með því að nota heimafengið og náttúruvænt rafmagn í stað innfluttra orkugjafa. En það er ekki bara mismunurinn á milli rafmagns og bensíns eða dísilolíu sem þarf að skoða heldur líka hvað það kostar að eiga rafbíl?
Kostar meira að þjónusta í dag en bilið minnkar
Það kostar meira að þjónusta rafknúin ökutæki en bensínknúin hliðstæð ökutæki, en bilið minnkar með tímanum, samkvæmt nýjum gögnum frá greiningarfyrirtækinu og vefsíðunni We Predict.
Skoðuðu gögn frá 19 milljón bílum
We Predict skoðaði gögn frá um 19 milljón ökutækja á milli áranna 2016 og 2021.
Ný vandamál í rafbílum
Rene Stephens, atjórnandi hjá We Predict, sagði að málið stafi að hluta til af því að vandamál í rafbílum séu enn ný og ókunnug mörgum tæknimönnum.
„Þetta er iðnaður sem er að fóta sig af stað“, sagði hún í blaðamannafundi. „Þetta er upphafsþátturinn sem við sjáum“.
Eftir þriggja mánaða eignarhald var þjónustukostnaður Mach-E $ um 93 dollarar á hvern bíl, mun lægri en hjá næsta keppanda, Audi E-tron, sem var um 366 dollarar á bíl, sagði We Predict.
Meirihluti viðgerðarinnar snerist um sérstaka íhluti rafkerfisins, svo sem raflögn eða vandamál með hleðslu.
Ford Mach-E stendur sig best í Bandaríkjunum
Meðal nýlegra áberandi rafbíla á markaði fann We Predict að Mustang Mach-E frá Ford Motor Co. skilaði bestum árangri.
„Það virtist eins og þeir hafi neglt grunnatriði rafbíla“, sagði Stephens um Ford. „Það lofar góðu fyrir hvernig framtíð þeirra mun líta út."
We Predict er með áætlanir að koma fram með sambærilega skýrslu þar sem horft er til kostnaðar við þjónustu við rafbíla eftir þriggja ára eignarhald.
(frétt á Automotive News Europe – byggt á frétt Michael Martinez á vef We Predict)
Aðrar umfjallanir
Djarfari, stærri 2024 Hyundai Kona Electric tekur stórt stökk fram á við...
Núna á laugardaginn, 14. janúar næstkomandi, blæs Hekla til rafmagnaðrar vetrarsýningar að Laugavegi 174 á milli klukkan 12 og 16.
Hann var upphaflega smíðaður fyrir bændur sem m.a. þurftu að komast á sveitamarkaðinn með vörur. „Þeir þurftu helst að geta ekið nokkuð greitt yfir óplægðan akur án þess að eitt einasta egg brotnaði í körfunni.“
Sony-Honda Mobility, samstarfsverkefni Honda og tæknifyrirtækisins Sony, hefur afhjúpað fyrstu frumgerð sína auknafnið, Afeela...