Fyrsti rafbíll Jeep mun koma árið 2023
Stellantis-samsteypan hefur þegar tilkynnt um áætlanir sínar varðandi rafvæðingu fyrir ýmis vörumerki, en á þriðjudaginn gaf fyrirtækið upp nánari tímalínu um hvenær sumir rafbílarnir koma – eða nánar bílar frá þeim sem aðeins nota rafmagn frá rafhlöðum. Með þessari uppfærðu tímalínu vitum við nú að Jeep mun kynna fyrsta rafmagnsbílinn sinn, sem aðeins notar rafhlöður, á fyrri hluta ársins 2023.
Ekki er vitað hvort þessi nýi rafknúni Jeep verður byggður á núverandi gerð eða verður eitthvað alveg nýtt. Vefurinn thetorquereport.com segir orðróm um að rafknúinn Jeep (sem aðeins notar rafmagn frá rafhlöðum) verði crossover sem er minni en Renegade. Alfa Romeo og Fiat munu einnig kynna svipaða crossover rafbíla.
Grunnarnir eru kallaðir STLA Small, STLA Medium, STLA Large og STLA Frame. Drægni rafbílanna verður á bilinu 480-800 km.
Jeep ætlar að lokum að bjóða upp á rafmagnsútgáfu í öllum þeim stærðarflokkum sem þeir eru með í dag árið 2025. Þetta þýðir að Wrangler rafbíll er mjög líklegur, sem Wrangler Magneto hugmyndabíllinn er búinn að forsýna nú þegar, en hann er einmitt á myndinni hér að ofan.
(byggt á frétt á thetorquereport.com – mynd Jeep)
Aðrar umfjallanir
Ég er enn einu sinni að tala um eftirfarandi grein í tryggingalögunum sem félög og samtök vildu fá breytt enda íþyngjandi fyrir kaupendur notaðra bíla...
Það getur verið bölvað vesen að flytja stórt sjónvarp þegar bíllinn er lítill. Þannig er til dæmis ekki hlaupið að því að koma 65 tommu LG sjónvarpi inn í „10 tommu“ Chevrolet Spark, ef svo má segja. Alla vega virðist sjónvarpið stærra en bíllinn.
Það er gaman að greina frá þeirri húmorísku staðreynd að það sem flestir lásu í janúarmánuði á Bílabloggi var einmitt greinin um efnið sem Facebook hafnaði 2021. Þess vegna prófuðum við að magna færsluna með öllum „stórvarasömu“ greinunum og „voilà“: Hún flaug í gegn!
Þegar einn milljarðamæringur sýnir bílasafni annars milla áhuga þá er gaman. Auðug systkin frá Abu Dhabi eru nú í heimsókn hjá indverskum félaga sem vildi endilega sýna þeim bílana sína og fóru þau með einkaþotu hans frá Dubai til Indlands.