Nýr Volkswagen Taigo coupe-sportjeppi 2021 formlega kynntur
Við sögðum frá því hér á vefnum í maí að Volkswagen væri að koma með nýjan lítinn sportjeppa, sem þeir nefna Taigo, og væri byggður á samsvarandi bíl frá VW sem er á markaði í Suður-Ameríku undir heitinu Nivis.
Núna er VW hinsvegar búið að svifta hulunni formlega af þessum nýja snaggaralega sportjeppa og skoðum hann aðeins nánar.
Núna þegar Volkswagen kynnnir nýja Taigo, litla sportjeppann sinn, lítinn „krossover“ sem er miðaður við lífsstílskaupendur sem gæti passað í framboði þýska fyrirtækisins á milli Polo og T-Cross sportjeppans þegar kemur að verði.
Aðlagaður fyrir Evrópu
Taigo er byggður á Nivus jeppa VW á Suður-Ameríkumarkaði, en vörumerkið hefur „tæknilega aðlagað bílinn fyrir Evrópu“, látið hann fá mun háþróaðri búnaði og bætt við sportlegri R-línu fyrir Evrópu.
Þess vegna - og allt eftir stigi búnaðar - verður Taigo fáanlegur með eiginleikum sem venjulega er að finna á stærri og flottari bílum, svo sem VW IQ.Light LED „matrix“ aðalljósum og IQ.Travel Assist hálfsjálfstýrðu hraðastýringuna.
Stafrænt mælaborð og upplýsingakerfi á skjá allt að 9,2 tommur að stærð með nýjasta MIB 3.1 stýrikerfi VW verður einnig fáanlegt.
Svipaður vélbúnaður og í Polo, T-Cross og T-Roc
Þar sem Taigo er byggt á MQB A0 grunni VW Group, sem er grunnur Polo og T-Cross og T-Roc, mun hann vera með svipað úrval af vélum.
VW hefur ekki staðfest hröðun 0-100 km/klst fyrir mismunandi aflrásir en hefur tilkynnt að hámarkshraði verði 180 km, 189 km og 210 km í sömu röð.
Þrátt fyrir sportlegra útlit Taigo hefur vörumerkið þegar staðfest að bíllinn muni ekki verða til í alvöru sportútgáfu í framtíðinni, jafnvel þótt Polo GTI aflrásin myndi passa vel í Taigo.
Ekki rafmagn í bili – en hugsanlega seinna
VW staðfesti að þó að engin áætlun sé um að rafvæða Taigo í bili, þá væri hægt að útfæra milda blendingstækni á síðari stigum ef eftirspurn viðskiptavina væri nógu mikil.
Hægt að sérsníða
Það er mikil áhersla á að sérsníða bílinn líka, þar sem VW býður Taigo í grænum lit, sem er einstaktur fyrir bílinn, sem kallast „Visual Green“. Þetta er hægt að tilgreina með Visual Green hönnunarpakka sem kemur með græna línu í mælaborði og áberandi græna sauma í farþegarýminu.
Fjögur búnaðarstig
Taigo línan samanstendur af fjórum þrepum í útliti. Grunnbíllinn verður búinn góðum búnaði sem staðalbúnaði, þar á meðal stafrænt mælaborð, 6,5 tommu snertiskjáupplýsingakerfi með snjallsímatengingu, LED aðalljósum og lituðum upphituðum rafstýrðum speglum. Aðstoðarbúnaður að framan með sjálfstæða neyðarhemlun auk akreinahjálpar verður einnig sem staðalbúnaður.
„Life“ útlit er næsta stig fyrir ofan þetta og býður upp á eiginleika eins og aðkomuljós og meiri krómáhrif að framan á bílnum, svo og annan USB-C hleðslustað, 16 tommu álfelgur, mismunandi áklæði og möguleika á stóru glerþaki.
Framboðið á bílnum færist síðan í tvær mismunandi leiðir; „Style“ útlit leggur áherslu á „sjónrænan glæsileika“ og býður upp á eiginleika eins og IQ.Light LED matrix aðalljós, 17 tommu álfelgur, bílastæðaskynjara að framan og aftan og flottari stuðara.
Aðeins lengri og breiðari en T-Cross
Taigo er aðeins lengri og örlítið breiðari en T-Cross sportjeppi vörumerkisins, en með meira hallandi þaki að aftan sem glti valdið því að höfuðrými sé aðeins minna en í „meira kassalaga“ systkinum bílsins.
Hins vegar þýðir 438 lítra farangursbíll bílsins að Taigo ætti að bjóða upp á mikla hagkvæmni í notkun. T-Cross býður upp á allt að 455 lítra pláss, svo það er ekki mikið bil frá systkinunum þegar röðin kemur að plássi í skottinu.
(fréttir á vef Auto Express og vefsíðu Volkswagen – myndir frá VW)
Aðrar umfjallanir
Klukkan þrjú hófst frumsýning á Škoda Enyaq Coupé iV. Myndbandið af herlegheitunum má sjá hér.
Þegar seinni heimsstyrjöldinni lauk hélt Willys-Overland fast í kjörorð framleiðslunnar á stríðsárunum, „sólin sest aldrei á jeppa...
Eitt er vörumerkið undir hatti VW-samstæðunnar sem er lítt þekkt hér á landi, en það er Seat á Spáni...
Það er kannski ekki fallegt að hefja umfjöllun með svo vafasari fullyrðingu: Að til sé Porsche sem flestir ættu að hafa ráð á að kaupa...