Volkswagen kynnti í gær áætlanir sínar um að breyta samstæðunni í hugbúnaðardrifið ferðalausna fyrirtæki með áherslu á öflugu vörumerkin sín og alþjóðlegu tæknipalla, sem veldur samlegðaráhrifum og eflingu um leið og að opna fyrir nýjar leiðir í gróða.
Herbert Diess forstjóri við kynningu á NEW AUTO.
„Við settum okkur stefnumarkandi markmið að verða leiðandi á heimsvísu í rafknúnum ökutækjum – og við erum komin vel áleiðis,“ sagði Herbert Diess forstjóri við kynningu á NEW AUTO, nýrri stefnu samstæðunnar til 2030
VW ID4 GTX. VW ID4 var valinn Bíll ársins af íslenskum bílablaðamönnum í ár. Hann ber einnig titilinn Heimsbíll ársins 2021.
„Byggt á hugbúnaði, verða næstu róttæku breytingar öruggari, snjallari og að lokum sjálfkeyrandi bílar.
Þetta þýðir fyrir okkur að tækni, hraði og mælikvarði munu skipta enn meira máli en í dag. Framtíð ökutækja er björt!“
- Volkswagen Group kynnti í gær nýja stefnu til ársins 2030.
- Sameining öflugra vörumerkja, efling tæknimála og aukin fjölbreytni í þjónustuleiðum mun leiða til samlegðaáhrifa, aukinna tekna og framtíðargróða.
- Aukinn metnaður fyrir rekstrarávöxtun í sölu fyrir árið 2025 úr 7-8% í 8-9% er grunnurinn að nýjum markmiðum.
- Samningur undirritaður við Gotion High-Tech til að hefja rafhlöðuframleiðslu í Þýskalandi; Spánn sem möguleiki fyrir þriðju verksmiðjuna
- Herbert Diess forstjóri: „Framtíð bíla og möguleika í ferðalausnum er björt. Volkswagen Group er að búa sig undir til að gegna mikilvægu hlutverki í nýjum heimi ferðalausna með sínum tæknisinnuðu, háþróuðu vörumerkjum.
VW mun leggja áherslu á hugbúnað.
Aðrar umfjallanir
MÍLANÓ – Kia mun auka úrval sitt af rafknúnum gerðum með litlum „crossover“ sem á að koma á markað árið 2024 sem og lítinn hlaðbak strax árið 2025...
VW vörumerkið ætlar að hætta framleiðslu bíla með brunahreyfla í Evrópu fyrir árið 2033, fyrr en fyrri markmið fyrirtækisins gáfu til kynna
Brimborg frumsýnir glænýjan, langdrægan Peugeot e-2008 SUV 100% hreinan rafbíl með mikla veghæð, háa sætisstöðu og 320 km drægni laugardaginn...