Brimborg kynnir nýjan og langdrægan Peugeot e-2008 - 100% hreinn rafbíll
- 320 km drægni á 100% hreinu rafmagni
Brimborg frumsýnir glænýjan, langdrægan Peugeot e-2008 SUV 100% hreinan rafbíl með mikla veghæð, háa sætisstöðu og 320 km drægni laugardaginn 8. ágúst að Bíldshöfða 8 í Reykjavík og Tryggvabraut 5 á Akureyri frá kl. 12-16.
Helstu atriði:
- 320 km drægni á 100% hreinu rafmagni
- 30 mínútur í 80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð
- Fjarstýrður forhitari tryggir alltaf heitan bíl
- Varmadæla eykur virkni miðstöðvar og drægni
- Mikil veghæð og há sætisstaða
- 5 ára ábyrgð á bíl og 8 ár á drifrafhlöðu
GLÆNÝR LANGDRÆGUR PEUGEOT e-2008 SUV 100% HREINN RAFBÍLL
Peugeot e-2008 rafbíll er sjálfskiptur með 136 hestafla, hljóðlátri rafmagnsvél, varmadælu sem eykur orkunýtingu og drægni, 50 kWh drifrafhlöðu sem er snögg í hleðslu og skilar 320 km drægni og forhitara sem tryggir að bíllinn er alltaf heitur þegar þú leggur af stað. Peugeot e-2008 rafbíll er með fimm ára alhliða ábyrgð og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu.
320 KM DRÆGNI Á 100 % HREINU RAFMAGNI
Peugeot e-2008 SUV 100% hreinn rafbíll er með 50 kWh drifrafhlöðu og varmadælu sem endurnýtir orku fyrir miðstöðina og því er drægni bílsins skv. WLTP mælingu framúrskarandi eða 320 km.
30 MÍNÚTUR Í 80% DRÆGNI Í 100 KW HRAÐHLEÐSLUSTÖÐ
Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Peugeot e-2008 SUV rafbíl heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða á 7,5 klst í öflugri heimahleðslustöð og aðeins tekur 30 mínútur að hlaða tóma drifrafhlöðuna í 80% hleðslu í 100 kW hraðhleðslustöð.
FJARSTÝRÐUR FORHITARI TRYGGIR ALLTAF HEITAN BÍL
Peugeot e-2008 er með fjarstýrðum forhitara sem tryggir að bíll er heitur og þægilegur þegar lagt er af stað. Einfalt er að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyPeugeot® appinu ásamt því að tímastilla forhitarann. Einfalt er að vera með yfirsýn á bílnum í snjallsímanum með MyPeugeot® appinu. Hægt er að skoða upplýsingar um bílinn þ.á.m. stöðu á drægni, hleðslustöðu, þjónustuyfirlit og panta tíma á þjónustuverkstæði.
VARMADÆLA EYKUR VIRKNI MIÐSTÖÐVAR OG DRÆGNI
Varmadæla er mikilvægur búnaður í rafbílum, sérstaklega á Íslandi því varmadælur virka best við -5 til 15°C og er hún staðalbúnaður í Peugeot e-2008 rafbíl. Hún endurnýtir orku fyrir miðstöð bílsins sem gerir það kleift að hafa miðstöðina í gangi og halda góðum hita í bílnum á köldum dögum án þess að það komi niður á drægni bílsins. Rafbílar án varmadælu þurfa annars að nota hluta af orku rafhlöðunnar fyrir miðstöðina.
MIKIL VEGHÆÐ OG HÁ SÆTISSTAÐA
Hönnun nýja Peugeot e-2008 SUV er alveg ný frá grunni og hefur hlotið einróma lof fyrir framsækið útlit sem er undirstrikað með LED fram- og afturljósunum sem setja sterkan svip á bílinn. Peugeot e-2008 er með mikla veghæð og háa sætisstöðu svo það er einstaklega þægilegt að ganga um hann. Innréttingin er nýjasta kynslóð af Peugeot 3D i-Cockpit sem er fullkominn stafrænn heimur þar sem mælaborð og stjórntæki eru í sjónlínu ökumanns og bæta þannig enn akstursgæði.
FULLKOMIN ÖRYGGISTÆKNI
Glænýr Peugeot e-2008 SUV er með nýjustu aksturs- og öryggistækni sem aðstoða ökumanninn við aksturinn og tryggir örugga ökuferð. Veglínuskynjun, blindpunktsaðvörun, vegskiltalesari, aðlögunarhæfur hraðastillir, sjálfvirk neyðarhemlun (Active city break) og ný gerð bakkmyndavélar eru dæmi einstakan öryggisbúnað í Peugeot e-2008 SUV.
5 ÁRA ÁBYRGÐ Á BÍL OG 8 ÁR Á DRIFRAFHLÖÐU
Gæði Peugeot eru einstök enda í boði með langri 5 ára alhliða ábyrgð á bílnum og sérstakri 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.
GRÍÐARLEGA GÓÐ FORSALA
Forsalan á Peugeot e-2008 hófst í vor og hefur gengið gríðarlega vel. Nú þegar hafa fjölmargir kaupendur forpantað nýjan e-2008 og valið sinn uppáhaldslit og útfærslu. Í Vefsýningarsal Brimborgar er að finna alla lausa bíla á lager og í pöntun. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Brimborgar.
Peugeot e-2008 SUV kostar frá 4.650.000 kr. og er fáanlegur í fjórum búnaðarfærslum; Active, Allure, GT-line og GT.
Aðrar umfjallanir
Svarið sem kemur strax upp í hugann er: „Já. Það er alltaf lummó og hreint út sagt kjánalegt.“ Þegar ég kannaði málið með dálitlu ferðalagi um veraldarvefinn komst ég að því, mér til mikillar furðu, að bílajólaskreytingar geta verið fyndnar!
Sagan segir að fyrsti páfabíllinn hafi komið til af því að páfi hafi fengið hálfgerða sjóriðu af að vera borinn í burðarstól á öxlum fólks. Hvernig sem það nú var þá er ótrúlegur fjöldi páfabíla til og margir æði undarlegir.
Einhver reiðinnar býsn af plat-bílasímum seldust í Ameríkunni stóru á níunda áratug síðustu aldar, því það þótti virkilega flott að vera með bílasíma. „Þetta er ekki spurning um hvað þú átt, heldur hvað fólk heldur að þú eigir,“ sagði platbílasímasölukona.
Chris Harris (úr Top Gear) á frekar áhugaverðan BMW. Þetta er nefnilega BMW M2 CS, einn af þeim 2.200 sem framleiddir voru. Twin túrbó, þriggja lítra línu sexa, hestöflin eru 406 og af stað nú.