Fyrstu fréttir af sýningunni sem byrjar 6. september
Núna þegar kórónavírus er aðeins farinn að sleppa af okkur klónum þá lifnar yfir bílaiðnaðinum.
Margir sem ekki mæta
Það er vitað nú þegar að Audi, BMW, Cupra, Dacia, Ford, Hyundai, Mercedes, MINI, Polestar, Porsche, Renault, Rolls-Royce, Smart og Volkswagen munu mæta, þó aðeins örfáir af þessum bílaframleiðendum hafi tilkynnt hvað þeir muni sýna.
Í fyrsta sinn í Munchen
Bílasýningin í München, sem kemur í stað hefðbundinnar bílasýningar í Frankfurt á þessu ári, verður byggð í kringum Summit svæðið, dæmigert bílasýningarými með nýjum vörum og frumsýningum.
Audi - Sky Sphere
Audi mun sýna tríó hugmyndabíla á bílasýningunni, sem þeir kalla „Sphere“, þar á meðal sportbíl, lúxusbíl og jeppa.
Sportbíllinn er kallaður ‘Sky Sphere’ og teikning sýnir útlínur af bíl með langri vélarhlíf og lága þaklínu.
Næst er lúxusbíllinn kallaður ‘Grand Sphere’ sem einnig var kynntur með útlínuteikningu sem sýnir gerð með langa og hallandi þaklínu, stóra hjólboga og háa axlarlínu.
BMW 7 Series
Orðrómur er um að BMW muni sýna nýja 7 Seríu lúxusfólksbílinn á bílasýningunni í ár, hugsanlega í formi hugmyndabíls. Það mun sýna breytinguna frá brunavélum til framtíðar rafknúinna lúxusbíla á nýjum grunni.
Dacia Lodgy
Bílaframleiðandinn Dacia mun sýna nýjan sjö sæta fjölnotabíl sem kallast Lodgy á sýningunni. Hann mun nota sama grunn og nýju Sandero og Sandero Stepway, en hann verður stærri til að rúma aukasæti fyrir farþega.
Renault
Renault er með sterka uppstillingu á sýningunni í München og byrjar með nýja Megane E-Tech rafbílnum. Það er full rafknúin útgáfa af þessum vinsæla fjölskyldubíl og mun keppa við Volkswagen ID.3.
Væntanlega mun tengitvinngerð Megane einnig vera þarna með.
Nýir bílar fyrir þéttbýli
Að lokum verða til ökutæki frá nýja Mobilize vörumerkinu, sem Renault notar til að sýna fyrirhugað úrval þéttbýlisbíla, líklega kallað Duo, Bento, Limo og Hippo. Þessi lína lítur út fyrir að vera í koma í stað hins sérstæða Twizy, en með nútímalegri sölustefnu með þar sem rukkað er fyrir notkun og þann tíma sem varið er í bílnum og greitt er fyrir með snjallsíma.
(byggt á frétt á Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Þá er RallyNuts rallinu í Wales lokið og íslenski rallökumaðurinn stóð sig með prýði, ásamt breskum aðstoðarökumanni. Þeir urðu í fjórða sæti í sínum flokki og því ellefta yfir heildina. Gunnar Karl bætti tímann heilmikið frá síðustu keppni og í þokkabót vann hann enskan meistara!
Ástæðurnar fyrir því að hætt hefur verið við er áhugaleysi bílaframleiðenda auk óvissu aðstæðna vegna stjórnunar á kórónaveirunnar...
Í dag skruppum við á Porsche sýningu á Krókhálsinn. Þar var margt fagurra gripa sem allir eiga það sameiginlegt að þjást ekki af aflskorti...
Nýr Volkswagen Golf R í áttundu kynslóð þessa bíls hefur verið kynntur opinberlega. Hann trjónir á toppnum í framboði vörumerkisins - og mun fylgja nýkomnum...