Júní sá stærsti í sögu Peugeot á Íslandi með 80 selda bíla
Afmælistilboð Peugeot hefur fengið frábærar viðtöku sem sést best á því að júní mánuður var sá stærsti í sögu Peugeot á Íslandi með 80 selda bíla.
Peugeot bifreiðar þykja enda skara framúr hvað varðar hönnun ytra útlits og hönnunar innrarýmis.
Rafmagns- og tengiltvinntækni (PHEV) Peugeot leikur þar einnig lykilhlutverk ásamt nýjum fjórhjóladrifnum PHEV bíl, auknum gæðum og framúrskarandi þjónustu Brimborgar með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu raf- og tengiltvinnrafbíla.
Peugeot afmælishátíð hjá Brimborg til 30. júlí
Í tilefni 5 ára afmælis Peugeot hjá Brimborg og metsölu Peugeot á Íslandi þá býður Brimborg í samvinnu við Peugeot í Frakklandi einstakt afmælistilboð á öllum gerðum Peugeot bíla á afmælishátíðinni til 30. júlí.
Af þessu frábæra tilefni fengu starfsmenn Peugeot á Íslandi sér dýrindisköku með morgunkaffinu.
Aðrar umfjallanir
Ef rétt reynist þá endurtekur „þetta“ sig, dag eftir dag, á sama tíma og á sama stað. Það er nú frekar fyndið en hér er „þetta“:
Það er gaman að sjá hvernig bílaframleiðendur á borð við Citroën og Renault sækja innblástur í gamalt fínerí úr fortíðinni. Renault 4 og 5 eru dæmi um það en svo er það Citroën Berlingo sem fær útlitið að hluta til frá 2CV Fourgonnette. Djarft og töff!
Nikolina Brnjac, íþrótta- og ferðamálaráðherra Króatíu er greinilega ekkert blávatn! Hér er hún á blússandi ferð í Ford Puma rallýbíl og ökumaðurinn er enginn annar en Craig Breen. Svona eiga ráðherrar að setja sig inn í málin!
Eftir keppni dagsins í Katar er af svo mörgu að taka að maður fer næstum í flækju. En sleppum flækjunni og skoðum það helsta!