Chevrolet Corvette, bíllinn sem bræddi hjörtu
- Fyrsta árs framleiðslubíll
- Einn af 300 framleiddum árið 1953
- „Blue Flame" 235ci sex strokka vél
- „Power Glide“ sjálfskipting
- Nýlega uppgerður af Corvettu „sérfræðingi“
- Áritað varadekk af núlifandi starfsmönnum verksmiðjunnar frá 1953
- Handbók undirrituð af Zora Arkus Duntov sjálfum
„Fyrsti alvöru sportbíllinn“
Chevrolet Corvette var kynntur á GM Motorama bílasýningunni í New York árið 1953. Hún var haldin á hinu stórglæsilega Waldorf-Astoria hóteli á Manhattann. Hönnun þessa tveggja sæta sportara hófst árið 1951 undir forystu hönnununarstjóra GM þess tíma, Harley Earl.
Markmið Earl var að breyta staðalmynd Chevrolet með sportlegum og kraftmiklum bíl og nýta um leið vaxandi áhuga fólks á slíkum bílum. Bíllinn dregur nafn sitt af hinum hraðskeiðu flota bátum sem kallaðir voru Corvettur og notaðar í seinni heimstyrjöldinni. Bíllinn hlaut nafnið Corvette eða „Draumabíllinn“ eins og hann var kallaður.
Corvettan varð þvílíkur „hittari“ meðal almennings í Bandaríkjunum. GM notaði þennan áhuga markaðarins til að réttlæta framleiðslu bílsins.
Varð fljótt vinsæll
Þessi merkilegi bíll sem oft hefur verið sagður sá eini sanni af sportbílaætt amerískra bíla rann út úr verksmiðjunni seint á árinu 1953 og nánast í sömu útfærslu og frumgerðin.
Bíllinn var mjög frábrugðinn öðrum bílum sem GM hafði framleitt til þessa en hann var fyrsti fjöldaframleiddi bíllinn úr glertrefjum, framleiddur af svo stórum framleiðanda.
Aðeins voru framleidd 300 stykki af bílnum fyrsta árið og í hverjum þeirra var sex strokka „Blue Flame“ vél frá Chevrolet og „Power Glide“ sjálfskipting.
Stíllinn hjá Harley kallinum var hreinn og straumlínulagaður og með hóflegu magni af krómi. Hver og einn bíll var búinn glæsilega rauðri „Sportsmans Red“ innréttingu sem kallaðist á við „Polo“ hvítan lit en stýri og mælaborð var einnig haft hvítt.
Mikið lagt í endurgerð
Þessi bifreið var smíðuð í lok nóvember árið 1953. Það var síðan Corvettu-áhugamaður sem eignaðist bílinn sem lét gera hann upp á nákvæman hátt til að hafa á sínu eigin bílasafni.
Hluti úr verksmiðjunni fylgir
Þessi bíll var síðan sýndur á 50 ára afmæli Corvette í Flint í Michigan þar sem núlifandi starfsmenn verksmiðjunnar rituðu nöfn sín á varadekkið.
Bílnum fylgir handbók undirrituð af Zora Arkus Duntov sem fékk viðurnefnið „faðir Corvettunnar“, handbækur tveggja söluaðila, eigendasaga og steinn úr verksmiðjunni í Flint með árituðum skildi.
Ennfremur fylgir honum upprunalegur tjakkur og hlífðarvasar undir hliðargluggana (bíllinn var með blæju).
Nú er einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja eignast eina af fyrstu framleiddu Corvettunum að grípa gæsina – hann er til sölu og söluaðilinn óskar eftir að svara verðfyrirspurnum í tölvupósti. Hins vegar er áætlað verð svona bíls um allt að 100 millur.
Aðrar umfjallanir
Ef fólk hefur ekki séð þetta þá er bráðnauðsynlegt að horfa! Nú, þeir sem hafa séð þetta ættu endilega að horfa aftur því hér er einhver mesta steypa sem völ er á.
Stundum eru athyglisverðar fréttir af innköllun hjá bílaframleiðendum, oftar en ekki snertir þetta einhverja bíla hér á landi, en hér er þó ein frétt af innköllun sem snertir að við vitum best engan bíl hér á landi!
Það kemur fyrir að á ferðinni séu brellnir bílar eða brellnir bílstjórar sem lögregla þarf að hafa afskipti af. Það gerðist einn daginn í Southampton á Englandi árið 1964. Þar var nefnilega á ferðinni sportbíll sem var í meira lagi undarlegur.
Þetta er jú ein leið til að losna við ryðið. Er þetta sniðugt eða ekki? Áhugavert væri að vita hvort lesendur hafi reynslu eða skoðun á svona löguðu. Þ.e. sýrubaði á bílnum en ekki sjálfum sér (að sjálfsögðu!). Hvað segið þið? Aðferð úr forneskju?