Ferrari innkallar 23.555 bíla vegna hugsanlegrar bilunar hemla
- Ferrari er að innkalla tæplega 25.000 bíla vegna loks á forðabúri hemla sem gæti leitt til bilunar á hemlum.
- Lokið gat ekki losað loft almennilega, sem mun valda lofttæmi í vökva bremsukerfis Ferrari-bíla og gæti valdið leka.
Stundum eru athyglisverðar fréttir af innköllun hjá bílaframleiðendum, oftar en ekki snertir þetta einhverja bíla hér á landi, en hér er þó ein frétt af innköllun sem snertir að við vitum best engan bíl hér á landi!
Í sjálfu sér er ekkert að hemlunum á öllum þessum Ferrari-bílum, heldur er það „loftunarvandi“ í hemlalögninni sem er vandinn!
Rót vandans er, samkvæmt bandarísku öryggiseftirlitsstofnunni, NHTSA, lok á forðabúri hemlakerfisins sem nær ekki réttri „útloftun“. Ef lokið nær ekki „að anda“ eins og ætlað er gæti það skapað lofttæmi í kerfinu og valdið leka.
Þessi leki gæti valdið því að hemlar bili, sem gæti síðan leitt til alvarlegrar bilunar (og hugsanlega áreksturs).
Lagfæringin er næstum eins einföld og hægt er að ímynda sér: Ferrari umboðið mun skipta um grunsamlega lokið og uppfæra síðan hugbúnað bílsins. Samkvæmt innköllunartilkynningunni er hugbúnaðaruppfærslan hönnuð til að veita ný viðvörunarskilaboð vegna lágs bremsuvökva.
Nær yfir bíla frá 17 ára tímabili
Inköllunin nær yfir gerðir frá 2005 430 til 2022 Portofino
Þetta er sökudólgurinn: Lokið á forðabúrinu er of þétt og nær ekki að anda!
Aðrar umfjallanir
Brimborg hefur sett í forsölu nýjan Peugeot 3008 SUV PHEV sparneytinn tengiltvinnjeppa með val um tvær aflrásir. Annars vegar 225 hestöfl með...
Ford vill leiða breytinguna yfir í lithium járnfosfat rafhlöður...
Það getur verið erfitt að aka með opnar dyr á bílnum. Sérstaklega á mikilli ferð; t.d. í ralli. Það virðiðst þó hafa gefið ökumanninum Henk Lategan byr undir báða vængi því þannig ók hann til sigurs í dag.
Nú er komið að því að þekkja bílinn á svipnum. Hvaða bíll er á myndinni?