Honda lýkur rafvæðingu flota síns í Evrópu með nýju kynslóðinni af Civic hlaðbaknum. Í Evrópu verður Civic aðeins fáanlegur sem blendingur eða „hybrid“. Þetta er á meðal þess sem framleiðandinn greindi frá í yfirlýsingu í dag, 24. júní.
Nýi bíllinn mun nota aflrás bílaframleiðandans e:HEV (tvinn rafbíll) sem er tenging 1,5 lítra bensínvélar við rafmótor.
Civic hybrid verður seldur samhliða Jazz hybrid og CR-V hybrid sportjeppanum. Nýr HR-V hybrid, lítill sportjeppi á að fara í sölu í Evrópu síðar á þessu ári en Honda selur einnig E-rafbílinn í Evrópu.
Honda segist hafa bætt aksturseiginleika nýja Civic með stífari yfirbyggingu og 19 prósent bætingu á snúnings-/togstífni miðað við fyrri gerð.
Honda mun ekki lengur smíða evrópuútgáfu Civic í Swindon á Englandi. Verksmiðjunni verður lokað í júlí þegar bílaframleiðandinn dregur saman alþjóðlegt framleiðslunet sitt. Honda hefur ekki ljóstrað því upp hvar evrópsku gerðirnar verða smíðaðar.
Honda hefur staðfest að hlaðbakurinn muni verða grunnur nýrrar kynslóðar af gerð R (sportlegri gerð) sem kemur árið 2022 en ekki hefur verið staðfest að sá bíll verði fáanlegur í Evrópu.
11. kynslóð Civic var í dag frumsýnd á kynningu sem fram fór á netinu (sjá myndband hér að neðan) fyrir sölu á sumum mörkuðum síðar á þessu ári; þar á meðal í Japan og Bandaríkjunum.
Civic hlaðbakurinn verður smíðaður í Bandaríkjunum í fyrsta skipti, í verksmiðju Honda í Greensburg í Indiana. Hlaðbaksútgáfan var áður flutt út til Bandaríkjanna frá Swindon verksmiðjunni.
Betri aksturseiginleikar
Honda seldi 17.008 Civic-bíla í Evrópu á síðasta ári og dróst salan saman um 54 prósent frá fyrra ári, samkvæmt tölum markaðsfræðinga JATO Dynamics. Bíllinn var þriðji söluhæsti bíll Honda á eftir Jazz og CR-V.
Honda segist hafa lagt höfuðáherslu á bætta aksturseiginleika nýja bílsins, að hluta til með stífari yfirbyggingu. Fyrirtækið fullyrðir að stífni í snúningi sé 19 prósent betri en í fyrri gerð bílsins.
Að innan verður Civic með 7 tommu eða 9 tommu snertiskjá, allt eftir búnaðarstigi, en nýr stafrænn skjár fyrir framan bílstjórann er fáanlegur í 7 tommu eða 10,2 tommu breidd. Grillmynstur bílsins má einnig sjá á mælaborðinu, þar sem það er notað til að fela loftop.
Kemur í júlí á næsta ári
Þegar Civic kemur á markað í Evrópu síðsumars 2022, verður hann vissulega búinn öllum þeim nýjasta öryggisbúnaði sem krafist er af Evrópusambandinu; þar á meðal skynvæddri hraðaaðstoð sem lætur ökumann vita ef farið er yfir hámarkshraða.
Fleiri nýjungar má nefna, eins og t.d. aðstoð í umferðarteppu til að hægja sjálfkrafa á og hraða bílnum í hægfara umferð. Honda hefur einnig búið bílinn aðlagandi aðalljósum.
(Automotive News Europe – myndir frá Honda)
Aðrar umfjallanir
Fyrir 114 árum birtist fyrsta Ford auglýsingin. Síðan þá hafa þær birst margar og alls ekki alltaf í hefðbundnu auglýsingaformi. Oft hefur verið um einhvers konar gjörning að ræða og má þar til dæmis nefna skemmtilegt uppátæki sem hafði með kveikt og slökkt ljós að gera.
Vegna kórónuveirufaraldursins hefur bílaframleiðsla víða um heim stöðvast, verðmæti bílafyrirtækja hefur fallið...
Volkswagen hefur farið sér hægt varðandi „alvöru“ torfærubíla, en þó hafa öðru hvoru borist fréttir af því að þar á bæ...
Hin spænska Laia Sanz er mikið hörkutól. Hún hefur keppt í mótorhjólaflokki í Dakar rallinu síðan 2011 og ekki misst úr keppni. Á sama tímabili, þ.e. síðustu 11 árum, hefur hún keppt í fjölda keppna; Enduro, trial og ralli. Í þetta skipti keppir hún í fyrsta sinn á bíl í Dakar.