Varmaskjólur eða boddýpeysur?
Smekkurinn er misjafn eins og mannfólkið. Spurning hvernig það myndi henta okkur hér á Íslandi að klæða bílana okkar í ullarpeysur til að verja þá fyrir kuldanum. Dæmi nú hver fyrir sig.
Prjónuðu kaðla „ húfu” á VW Bjöllu
Það var prjónari í LA sem fékk það skemmtilega verkefni að prjóna húfu á VW Beetle. Túlkunin átti að sýna fram á að „bílahúfa” væri „notaleg” fyrir bílinn. Zurich Insurance Group í Bretlandi var viðskiptavinurinn.
Þarna undir er Bjallan sem eigandanum þykir svo ofurvænt um.
„Þetta var einfalt“, sagði Judy Gergory, prjónakona með meiru. „Ef þú elskar eitthvað nógu mikið, verndar þú það á sem bestan hátt.“ Prjónaðu húfu og gefðu hana þeim sem þú elskar.
Hún var um 11 daga að klára húfuna en hafði með sér tvær vinkonur til hjálpar. Þær notuðu prjóna númer 35 í verkið.
Við látum nokkrar myndir af vel prjónuðum „Varmaskjólum“ eða „Boddýpeysum“ á bílinn fylgja með.
Hér er önnur Bjalla, aðeins eldri. Takið eftir prjónuðu/hekluðu hulsunum utan um dekk og felgur.
Þessi er í regnbogalitunum.
Gæti verið að þarna undir sé ef til vill Fiat 850?
Hver þarf hita í sætum með svona útbúnaði?
Ef menn hafa engan garð er þetta ef til vill lausnin.
Takið eftir hliðarspeglinum - ekkert stílbrot í þessu. Dúskurinn gerir gæfumuninn.
Mikið lagt í þessa Boddýpeysu. Ætli þetta gæti verið Subaru eða Nissan?
Skemmtilegur frágangur felgum. Hvað erum við að tala um margar dúllur, heklaðar á þessum?
Þetta er nú bara frekar lekkert hekl myndi ég segja.
Smart þessi.
Þessi Renault 4 er líklega af hippakynslóðinni.
Aðrar umfjallanir
ÍSBAND umboðsaðili JEEP og RAM á Íslandi býður til stórglæsilegrar jeppa- og pallbílasýningar laugardaginn 6. júní...
Flatout og fjör hjá einum meðan annar fletur eitthvað út. Svona er þetta í rallinu. Hér er ágæt samantekt úr Monte-Carlo rallinu, á láni og óláni, hraða og skyndilegu hraðatapi.
Rússland endurvekur Moskvich vörumerki Sovéttímans með kínverskum grunni...
Árið 1965 fór Ford Mustang eins hátt og unnt var að komast. Upp á hæsta skýjakljúf veraldar á þeim tíma, en það var Empire State-byggingin í New York. Alls er byggingin 102 hæðir en hæsti punktur byggingarinnar er 381 metri.