Það er útlit fyrir að um þrjár milljónir manna séu ekki á þeirri skoðun að Tesla Cybertruck sé ógeðslega ljótt ökutæki. Í það minnsta er því haldið fram að búið sé að panta yfir þrjár milljónir af þessum sérstaka pallbíl sem á að fara í fjöldaframleiðslu árið 2023.
Ef rétt reynist þá hafa rúmlega þrjár milljónir Cybertruck-pantana verið staðfestar en áætlun Tesla gerir ráð fyrir framleiðslu 500.000 bíla á ári. Biðtíminn yrði því býsna langur miðað við ætlaða framleiðslugetu.
Fréttir um þetta birtust seinnipartinn í gær á vefnum Torque News. Greinarhöfundur, Armen Hareyan, hefur eftir manni nokkrum í Chicago, Bran Gillespie að pantanir á Cybertruck séu nú yfir þrjár milljónir talsins.
Er það virkilega svo?
Nú þegar asnalegt er að tala um grímur þá gerðist það nú samt við lestur fréttarinnar að á mig fóru að renna tvær grímur. Hvernig ætti að vera hægt að fá slíkar upplýsingar?
Skjáskot/YouTube
Þetta er auðvitað ekki staðfest með nokkrum hætti og þó svo að fjallað sé um málið getur vel verið að þetta sé bara bölvuð vitleysa. En hér má skoða þráð á Twitter þar sem þetta er rætt fram og til baka.
Þarna eru í það minnsta nokkrar misgóðar hugmyndir.
Aðrar umfjallanir
Bók um ökumanninn danska, Kevin Magnussen, kom út í gær. Á dönsku. Í bókinni gerir hann upp árin sem hann keppti í Formúlu 1. Nú kemur sér vel að hafa lært dönsku í öll þessi ár, ekki satt?
Stundvíslega á miðnætti að íslenskum tíma á mánudagskvöldið 13. júlí opinberaði Ford nýjan Ford Bronco eftir hlé frá 1996, en upprunalegi Bronco var framleiddur...
Nú erum við hjá Bílablogg.is á fullu í verkefni í samstarfi við Heklu sem lýtur að upplifun við að skipta yfir úr hefðbundnum bíl með brunavél yfir í bíl með rafmótor...
Þegar það er erfitt að bíða eftir Cybertruck er nauðsynlegt að finna upp á einhverju sniðugu til að tíminn líði hraðar. Hér eru nokkur dæmi úr Cybertruck-heimum: