Nýr Nissan Z sportari á leiðinni
Það er búið að vera mikið rætt um nýjan Nissan Z sportara í bílaheiminum sem kemur á markað 2022. Nú er komið að því. Í sumar verður framleiðslulíkanið tilbúið og meira að segja búið að negla frumsýningar daginn sem er 17. ágúst næstkomandi.
Alvöru „gamaldags“ sportari
Menn vita reyndar ótrúlega mikið um þennan nýja fák, þó enn sé margt á huldu. Hann verður til dæmis með beinskiptingu, tveggja forþjöppu V6 vél og afturdrifi.
Það er nokkurnveginn vitað hvernig hann lítur út – hann verður flottur enda er búið að leka myndum út af nánast fullbúnu framleiðslueintaki.
Fullt sem við vitum ekki enn
Hins vegar er fullt sem ekki er ennþá vitað. Engar hestaflatölur liggja fyrir. Mjög líklegt er að bíllinn verði búinn 3 lítra, tveggja túrbínu V6 vél úr Infiniti Q60 bílnum. Þannig gæti þessi bíll verið allt að 400 hestöfl. Ekki er vitað hverskonar breytingar hafa verið gerðar á undirvagni eða hversu þungur hann verður.
Við munum alveg örugglega fylgjast með komu þessa flotta bíls og segja ykkur frá ofangreindum atriðum.
Alltaf gaman að flottum sporturum og þessi er meira að segja með „gamaldags“ brunavél.
Hér má sjá helling af flottum myndum af gripnum
Byggt á greina Autoblog - myndir Nissan.
Aðrar umfjallanir
Jæja, þá mega nokkrar milljónir aðdáenda Formúlu 1 taka gleði sína á ný. MIchael Masi, keppnisstjórinn sem svo margir vildu burt eftir keppnina í Abu Dhabi er hættur. Maðurinn er ekki lengur keppnisstjóri.
Stundum eru góðar fréttir í heiminum og í dag er ein slík á ferðinni: Búist er við að stjórn Volkswagen samþykki á miðvikudag áætlun...
Maríubjalla? Það má kannski segja það en þessi snotra bjalla er afrakstur tveggja ára vinnu. Þó bjallan, sem nefnist María, sé skrautleg kemst hún ekki í hálfkvisti við eigandann sem er skrautlegri en jólatré á Þorláksmessu.
Fjölmargir bílar hafa vakið athygli gegnum tíðina en ekki hafa margir haft bein áhrif á framleiðslu annarra ökutækja. Hér eru tólf þeirra sem mörkuðu á einhvern hátt tímamót í sögunni. Eða ruddu brautina. Bílabrautina.