Fjölmargir bílar hafa vakið athygli gegnum tíðina en ekki hafa margir haft bein áhrif á framleiðslu annarra ökutækja. Hér eru tólf þeirra sem mörkuðu á einhvern hátt tímamót í sögunni. Eða ruddu brautina. Bílabrautina.
1. Land Rover Defender
Hvernig breytti hann heiminum? Með því að komast allt. Ljósmynd/Wikipedia
Hvert sem hann fer þá er hann alltaf á heimavelli. Í sveitinni, úti í skógi eða móa.
2. Toyota Prius
Hvernig? Með því að koma með tvinntæknina, Mynd/Wikipedia
Tæknilega séð var Honda Insight fyrsti tvinnbíllinn en hann náði ekki athygli fólks á sama hátt og Prius.
3. Thrust SSC
Hvernig? Með því að fara hraðar en hljóðið. Mynd/Wikipedia
Árið 1997 komst þetta farartæki upp í 1228 km/klst (763 mílur) og þar með var Thrust SSC fyrsti bíllinn til að rjúfa hljóðmúrinn. Andy Green ók bílnum á þessum geigvænlega hraða.
4. VW bjalla
Hvernig? Með því að vera Ford T Evrópu. Mynd/Wikipedia
Með tilkomu bjöllunnar áttu milljónir almennra borgara þess kost að eignast bíl.
5. Bugatti Veyron
Hvernig? Með því að vera Concorde bílanna Mynd/Unsplash
Var virkilega þörf fyrir götuskráðan bíl sem næði 407 km/klst (253 mílur)? Auðvitað ekki. Svipaðra spurninga mætti spyrja um nauðsyn þess að fara til tunglsins eða að byggja Taj Mahal. En ekkert af þessu var gert af brýnni nauðsyn heldur snýst sumt einfaldlega um það að sýna alheiminum hvers maðurinn er megnugur. Og það tókst.
6. Audi Quattro
Hvernig? Með því að koma með fjórhjóladrifið inn í rallið. Mynd/Unsplash
Áður en þessi bíll kom til sögunnar voru rallýbílar með afturendann hoppandi og skoppandi í hverri beygju, þar til afturhjólin náðu nægilegu gripi til að koma tækinu áfram. Afturendar rallýbíla hoppa enn og skoppa – bara á mun meiri hraða.
7. Tesla Model S
Hvernig? Með því að gera rafbíla að almennilegum bílum. Mynd/Unsplash
Áður en Model S kom til sögunnar þurftu menn stöðugt að hafa áhyggjur af rafmagninu og sífellt að hlaða rafhlöður rafbíla. Heimurinn þurfti á bíl að halda sem stinga mætti í samband, hlaða og aka svo drjúgan spöl, eða um 400 kílómetra eða svo. Model S er sá bíll.
8. Google Streetview bílarnir
Hvernig? Með því að kortleggja jörðina. Mynd/Unsplash
Þessir bílar hafa kortlagt og farið yfir meira en fimm milljónir mílna og safnað saman yfir 20 petabætum (petabytes) af myndefni. Þeir hafa algjörlega umbylt skipulagningu ferðalaga og fyrir vikið er auðveldara að velja bestu leiðirnar og finna vegi í góðu standi.
9. Austin Mini
Hvernig? Með því að vera agnarsmár og góður. Mynd/Wikipedia
Bílkríli eða smábílar voru engin nýjung þegar Mini kom á markað. En enginn þeirra var nærri eins vel hannaður og Mini.
10. G-Wiz [REVAi]
Hvernig? Við verðum jú að læra af mistökunum. Mynd/Wikipedia
Mini er dæmi um allt það góða við smábíla en G-Wiz er hins vegar dæmi um allt hitt. Hann er ljótur, illa smíðaður og hönnunin er frat.
11. Lunar Rover
Hvernig? Með því að aka á tunglinu. Mynd/Nasa/Unsplash
Um 250.000 mílum frá jörðu lenti bíllinn (sem fór auðvitað með eldflaug) á tunglinu og hóf könnun á yfirborði þess. Upplýsingarnar sem Lunar Rover safnar eru ákaflega mikilvægar í vísindalegu samhengi.
12. Toyota Hilux
Hvernig? Með því að vera ódrepandi. Mynd/M. Brand/Óðinn Kári
Að sjálfsögðu er Hilux á þessum lista Top Gear. Annað væri ótækt. Reyndar eru allt aðrir karlar sem þetta skrifa en þeir sem markvisst reyndu að drepa Hilux hér um árið eins og frægt er orðið. Þeir Clarkson, May og Hammond lögðu sig virkillega fram en ekkert tókst.
Hér verður að fylgja myndband, eins konar samantekt af tilraunum þeirra til að gera út af við Hilux:
[Sem fyrr segir er þetta nú mat Top Gear karlanna en listann í heild má skoða hér]
Þessu tengt:
Aðrar umfjallanir
Nú eru margir orðnir spenntir fyrir næsta bíl frá Rivian en það er 7 manna jeppi og sá er engin smásmíði! Hröðunin frá 0 í 100 er um 3 sekúndur og drægnin rúmlega 500 kílómetrar. Hann getur dregið allt að 3.5 tonn og virðist dugandi jeppi.
BL hefur nú tekið upp þá nýbreytni að bjóða viðskiptavinum sem kjósa að fá sendan nýjan reynsluakstursbíl heim að dyrum í stað þess að gera sér ferð í sýningarsali...
Rafknúni Mustang Mach-E seldist betur í Bandaríkjunum en hefðbundinn Mustang í júní síðastliðnum.
Brimborg hóf sölu á netinu á Volvo XC40 rafmagnsjeppanum í byrjun júní og nú eru fyrstu bílar til sýnis og reynsluaksturs komnir til Brimborgar, bæði í...