Glæponar og bílarnir þeirra

Öll höfum við séð bíómyndir og sjónvarpsþætti þar sem aðal „atvinnutæki“ glæpona eru bílar.

Glæpamenn og flóttabílar þeirra haldast í hendur, en vissirðu að hugmyndina um flóttabifreið má í raun rekja allt aftur til alræmda útlagans Jesse James?

Nýjungar James í glæpastarfsemi Bandaríkjanna komu frá aðferðum skæruliða sem hann hafði kynnst í borgarastyrjöldinni, með hröðum áhlaupum og skjótum flótta sem skipti sköpum fyrir hann og hann gat nýtt sér síðar í bankaránum.

image

Al Capone

Sé litið aftur til þriðja áratugar síðustu aldar gæti hríðskotabyssan hafa verið besti vinur gangsteranna, en hraðskreiður bíll var örugglega ekki síðri vinur.

Glæpamenn snemma á þriðja áratug síðustu aldar byggðu upp heimsveldi sitt í miðri tæknibyltingu. Þeir voru meðvitaðir um að rétt farartæki gat ráðið úrslitum um hvort þeirra biði vist í fangaklefa eða frelsið sjálft.

Al Capone kaus Cadillac frá 1928 341, og er talið að Capone sé einn af fyrstu gangsterunum til að búa bíla sína brynvörn og skotheldu gleri. Þessi tiltekni bíll átti líka sína sögu: Samkvæmt sögusögnum tók Franklin D. Roosevelt Bandaríkjaforseti bílinn eignarnámi eftir að Capone var handtekinn og notaði sem forsetabíl.

image

Cadillac Model 341 fólksbíll frá 1928 sem talið er að hafi verið í eigu Chicago mafíósans Al Capone er fullkomið dæmi um hvernig glæpir vekja athygli á (tiltölulega) algengum bíl.

Capone átti einnig nokkra aðra bíla, þar á meðal 1940 V-16 Cadillac sem nú er til sýnis (eftir samkomulagi) hjá Collings Foundation í Massachusetts.

Til upprifjunar var Capone mafíósaforinginn sem náði yfirráðum yfir glæpaveldi Chicago 26 ára að aldri. Hann var tengdur við alræmdustu ofbeldisglæpi í sögu borgarinnar.

Ekki tókst að ákæra hann í tengslum við ólögleg viðskipti eða framkvæmd glæpa. En hann var handtekinn og sakfelldur fyrir skattsvik, og þannig var honum komið á bak við lás og slá í Alcatraz.

image

Joaquín „El Chapo“ Guzmán – eða „sá stutti“

Yfirmaður Sinaloa-samtakanna, öflugustu fíkniefnasamtaka heims, eiturlyfjabaróninn Joaquín Guzmán Loera, annars þekktur sem El Chapo, er einn frægasti glæpamaður heims. Hann er almennt kallaður „El Chapo“ eðs „sá stutti“.

El Chapo fæddist í Mexíkó og byrjaði sinn glæpaferil á unglingsaldri. Sinaloa-samtökin stofnaði hann árið 1989 og eru þau gríðarstór á heimsmælikvarða.

El Chapo er þekktur fyrir ofbeldisverk sín og flótta úr fangelsi. Hann er „metinn“ á yfir 70 milljónir punda og árið 2009 skipaði hann 701 sæti á Forbes listanum yfir ríkustu menn heims.

image

„El Chapo“ við einn af bílum sínum: Gullsleginn Chrysler 300v Versace.

Öllum þessum krafti og ríkidæmi fylgir náttúrulega langur listi yfir virðuleg ökutæki. Ef við skoðum fáeina bíla sem El Chapo hefur átt þá má til dæmis nefna Jeep Sahara, Dodge Viper, Mercedes G-Class, Dodge Challenger SRT Hellcat og nokkur mótorhjól.

image

Bonnie og Clyde

Af öllum glæpamönnunum sem tengjast ökutækjum eru fáir eins frægir og Bonnie Parker og Clyde Barrow. Snemma árs 1934 stálu þau bíl og óku honum 2.500 mílur. Ökuferðin sú einkenndist af fjölda rána og morða.

Sá bíll var Ford V8, knúinn tiltölulega nýrri V8-vél með sléttu heddi, sem varð vinsæll hjá alls kyns glæpamönnum um Bandaríkin vegna afls hans og hversu auðvelt var að breyta honum.

Auðvitað var frægð Bonnie og Clyde undirstrikuð með bílnum sem skartar yfir 100 kúlnagötum.

image

Hinn frægi bíll, Ford-inn sem Bonnie og Clyde voru drepin í, varð samstundis frægur sem slíkur. Bíllinn var keyptur og seldur margoft til sýninga á söfnum og sem áhugaverður gripur fyrir ferðamenn. Í dag er hann geymdur í spilavítinu Whisky Pete’s í Primm Nevada. Og „kúlnagötin“ á bílnum fara ekki fram hjá neinum.

Reyndar, í apríl 1934, skrifaði Barrow meira að segja til Henry Ford sjálfs og hrósaði bílnum og sagði: „Fyrir viðvarandi hraða og frelsi frá vandræðum hefur Fordinn reynst betur en hver annar bíl, og jafnvel þótt viðskipti mín hafi ekki verið stranglega lögleg, þá skaðar það engan að segja þér hvað þessi V8 bíll er fínn.“

image

Bronco-bíllinn hans O.J. Simpson árið 1993

Við skulum í lokin færa okkur aðeins nær nútímanum. Þó að við getum aldrei vitað fyrir víst hvort fyrrum NFL stjarnan O.J. Simpson framdi morðin sem hann var sakaður um, þá vitum við að hann var á undan lögreglu í löngum eltingaleik um Los Angeles, á hvítum Ford Bronco 1993.

Jafnvel þó félagarnir hafi reynt að komast hjá handtöku lögreglu óku þeir á hægt og úr varð prýðilegasta sjónvarpsefni sem tekið var upp í fréttaþyrlum sem sveimuðu yfir þeim.

Eftir um klukkustund gafst Simpson upp í innkeyrslunni heima hjá sér og fjölmiðlasirkus í kringum réttarhöld hans var lengi í gangi.

image

En bíllinn í eltingaleiknum var ekki bíllinn sem Simpson átti, heldur átti vinur hans, Al Cowlings þann bíl; sem var nákvæmlega eins og bíll stjörnunnar. Bíll Simpsons stóð hins vegar í innkeyrslunni heima hjá honum. Í honum fundust leifar af blóði frá morðinu og sá bíll endaði sem sönnunargagn.

Bronco-bíllinn sjálfur er tveggja dyra V8 og skipti um eigendur nokkrum sinnum eftir Simpsons eltingaleikinn. Ford hætti með þessa gerð árið 1996, aðeins tveimur árum eftir eltingaleikinn.

Látum þetta duga í dag um glæpamenn og bílana þeirra – en kannski meira seinna.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is