Christian von Koenigsegg og nýjasta afurðin hans
Langflest fólk sem hefur áhuga á sportbílum vita sitthvað um Sænska ofurbílaframleiðandann Koenigsegg. En hvað vitið þið um manninn á bakvið nafnið?
Hér á eftir fylgir viðtal við frumkvöðulinn og hugsjónamanninn Christian von Koenigsegg en það er eiginlega skylda að horfa á þetta myndband til að kynnast manninum og hvernig hann hugsar.
Geðþekkur og áhugaverður maður ekki satt?
Nýjast bíllinn var afhjúpaður í útsendingu á Netinu 3.mars 2020 og heitir Koenigsegg Gemera.
Þetta er tengitvinnbíll sem er 4 sæta og með farangursrými sem er óvanalegt fyrir svona ofurtæki.
Hann er drifinn áfram af 3 strokka 2 lítra vél með 2 forþjöppum sem er kölluð TFG sem er skammstöfun á Tiny Friendly Giant eða Pínulítill Vinalegur Risi og hún er staðsett miðsvæðis í bílnum.
Þessi mótor er algjör tæknibylting og alveg efni í sérstaka umfjöllun. Eldsneytið er E85 en hann getur gengið á flestu eldsneyti.
Að auki eru 3 rafmótorar notaðir til að koma bílnum upp í kolólegan hámarskhraða. Gírkassinn ef það má kalla hann svo er með 1 gír og er kallaður á þeim bæ Single-Speed Koenigsegg Direct Drive (KDD).
Því ekki að skella sér að lokum í bíltúr með Nico Rosberg á Gemera?
Vonandi gagnast þessi stutta grein þeim sem eru að drukkna í seðlum að gera upp hug sinn varðandi hvað skal gera við þá.
Aðrar umfjallanir
Samkvæmt frétt á þýska bílavefnum Automobilwoche er sænski bílaframleiðandinn Volvo Cars að byrja stefnumótandi samstarf á sviði...
Öspin er ein algengasta trjátegundin víða um landið og slútir gjarnan yfir bílastæði við húsin...
Framboð Toyota næstu 30 árin mun innihalda ógrynni af valkostum umfram rafknúin ökutæki, að því er stjórnendur Toyota sögðu á árlegum hluthafafundi...
Vestur í Kaliforníu er búist við því að meðalstór sportjeppi með rafdrifi og nýjustu rafgeymatækni frá Kína komi á markað árið 2022, bíll sem...