Fræin af öspinni geta farið illa með lakkið á bílnum
- Fræin eru með trjákvoðu sem límist við lakkið
- Verður að hreinsa fljótt því annars skemmist lakkið til frambúðar
Öspin er ein algengasta trjátegundin víða um landið og slútir gjarnan yfir bílastæði við húsin.
Ef þessi trjákvoða nær að brenna sig fasta við lakkið, til dæmis í sólarljósi, þá er voðinn vís og það getur reynst erfitt að hreinsa þetta af án þess að skemma lakkið.
En ef þetta er hreinsað strax þá er skaðinn enginn og lakkið helst óskemmt.
Setja þarf smávegis af spritti í mjúkan klút og nudda létt yfir trjákvoðuna þar til að ummerki um hana hverfa og bóna svo bara yfir lakkið á eftir!
[Birtist fyrst 26. maí 2020}
Fleira um lakk:
Aðrar umfjallanir
Fyrsti bíllinn sem rúllaði af færibandinu í Solihull var kláraður um það bil tveimur dögum eftir að framleiðsla hófst.
Átt þú ekki bílskúr eða mátt þú ekki eiga bílskúr? Það er afleitt hvort heldur sem er. Að eiga bíl en engan bílskúr getur verið dálítið eins og að eiga mat en engan ísskáp. Það eiginlega gengur ekki.
Ef þú vilt rafmagns Ford Mustang eru möguleikar þínir að mestu leyti takmarkaðir við að kaupa komandi Mustang Mach-E, sem er á engan hátt tengdur tveggja dyra bílnum...