Metsala Peugeot á Íslandi: Yfir 2000 Peugeot bílar á 5 ára afmælisári hjá Brimborg
Peugeot fólks- og sendibílar hafa aldrei notið jafn mikilla vinsælda á Íslandi hvorki fyrr né síðar og markaðshlutdeild aldrei verið hærri og er það einstaklega ánægjulegt fyrir starfsmenn Brimborgar að upplifa það á 5 ára afmælisári Peugeot hjá Brimborg.
Brimborg tók við Peugeot umboðinu árið 2016 og nú styttist í að Peugeot númer 2000 verði afhentur hjá Brimborg.
Íslenskir bílkaupendur hafa tekið einstaklega vel á móti nýju Peugeot bílunum og það sem af er ári er Peugeot í hópi þriggja mest seldu bílana til einstaklinga á Íslandi. Peugeot bifreiðar þykja enda skara framúr hvað varðar hönnun ytra útlits og hönnunar innrarýmis.
Peugeot afmælishátíð hjá Brimborg til 30. júní
Í tilefni 5 ára afmælis Peugeot hjá Brimborg og metsölu Peugeot á Íslandi þá býður Brimborg í samvinnu við Peugeot í Frakklandi einstakt afmælistilboð á öllum gerðum Peugeot bíla á afmælishátíðinni til 30. júní. Að auki, vegna einstaklega góðrar endursölu notaðra Peugeot bíla, býður Brimborg hærra uppítökuverð á notuðum Peugeot upp í nýja Peugeot.
Aðrar umfjallanir
Porsche færist nær þeirri ákvörðun hvort skipta um 718 Boxster og 718 Cayman í hreint rafmagn - en yfirmaður fyrirtækisins segir að það þurfi enn...
Auðvitað er ekki fallegt að hlæja að óförum annarra. Verst er að stundum eru mistökin helst til spaugileg eins og í tilviki þessa bílstjóra í Flórída sem átti í bölvuðu basli með að snúa stóru ökutækinu við. Enda gafst hann upp.
Barn að aldri heillaðist ég af bíl. Bíl sem minnti dálítið á nestisbox - en það var nú ekki það sem heillaði mig (að hann líktist nestisboxi). Þetta var Renault 5...
Við höfum verið að fjalla um uppruna nokkurra bíla að undanförnu og þar á meðal jeppanna. Við byrjuðum á sögu herjeppans frá Willys...