100% rafdrifinn Explorer fer í framleiðslu

Ford notaði morguninn í að ræða rafmagnaða framtíð fyrirtækisins. Fram kom að allt að 40% seldra bíla frá Ford verða 100% rafdrifnir árið 2030. Það þýðir að þeir hjá Ford þurfa að breyta ansi mörgum gerðum eða koma með nýjar – rafdrifnar. Það lítur út fyrir að Bronco og Explorer gætu verið tveir þeirra sem færu á rafmagnslista Ford.

image

Fjögurra dyra rafknúinn Bronco

Mike Levine, vörustjóri Ford skellti sér á Twitter og ræddi þar framtíðarsýn fyrirtækisins. Levine tísti mynd úr kynningu Ford sem sýnir útlínur fjögurra dyra Ford Bronco á rafknúnum grunni. Kassalaga formið er frekar augljóst en varadekkið á afturhleranum undirstrikar að þetta er Bronco. Levine vísaði meira að segja í „harðgera jeppa“ í tísti sínu sem sjá má hér fyrir neðan.

Það er um það bil eins nálægt því að staðfesta að um sé að ræða rafmagnaðan Bronco án þess að hann hafi sagt það með berum orðum.

image

Fyrir utan augljósan Broncoinn sýndu þeir einnig útlínur fyrir pallbíl og sendibíl. Ford hefur þegar kynnt F-150 Lightning sem við sögðum frá í gær og lesa má um hér.

Ford hefur einnig staðfest að E-Transit sé á leiðinni og að fleiri rafbílar séu í pípunum hjá Ford.

Levine svaraði sjálfur sínu eigin tísti og lét þá í veðri vaka að verið væri að þróa „alveg nýjan rafdrifinn pallbíl í fullri stærð“. „Það hljómar eins og næsti F-150 Lightning sé þegar á teikniborðinu.

image

Auk rafmagnaðra frétta af Bronco skveraði hann út öðru tísti: „Já, við munum rafvæða Explorerinn og það verður hluti af þeirri áætlun okkar um að vera með 40% framleiðslu okkar rafdrifnar bifreiðar fyrir árið 2030.

Ford selur um 200 þúsund stykki af Explorer í dag svo rafdrifinn slíkur bíll myndi skapa mikla magn aukningu í rafbílalínu Ford.

Markaðurinn fyrir millistóra (þrjár sætaraðir) sportjeppa (eins og Explorer) er heitur núna en enginn samkeppnisaðila okkar er með svipað stóran sjö sæta bíl og Explorer.

Rafdrifinn Mustang Coupe

Að lokum gefur Levine til kynna að nokkrar gerðir séu nú þegar á framleiðsluplani en gefur óljósar upplýsingar hvað það varðar.

Núverandi uppstilling á rafbílalínu okkar getur litið svona út: Bronco, Bronco Sport, Mustang, Mustang Mach-E og Ford GT.

Líklega getum við þó sleppt GT bílnum í þessari upptalningu en 100% rafmagnaður Ford Mustang Coupe (líklega sem viðbót við hefðbundna útgáfu með bensíndrifinni brunavél) og Bronco Sport gætu báðir litið dagsins ljós á þessum áratug.

Byggt á frétt Autoblog

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is