Bíltúr: Audi RS3 árgerð 2018
Bíltur er nýr bálkur hjá okkur í Bílablogginu. Fyrsti bíltúrinn okkar var farinn um nýliðna helgi og var farskjótinn Aud RS3 árgerð 2018. Eigandinn er Kristinn Soffanías Rúnarsson sem hefur um árabil átt Audi bíla. Við hittumst uppí Norðlingaholti og tókum rúnt um Hellisheiðina og það verður að segjast að þessi knái bíll kom á óvart.
18 tommu low álfelgur fyrir low profile dekk - framdekkin eru breiðari en afturdekkin.
Kristinn sérpantaði pústkerfið undir bílinn.
Krafturinn er nægur undir húddinu á Audinum, mótorinn er 2.5 lítra 5 strokka og skilar um 400 hestöflum – það er ekkert smá afl fyrir svo lítinn og tiltölulega léttan bíl. Grunnur þessa bíls er byggður á MQB grunni Volkswagen sem Audi TT og VW Tiguan deila.
Flottur Audi RS3 Quattro.
Þetta layout er byggt á framdrifsgrunni þar sem vélin er hugsuð þversum í bílnum, fyrir framan framöxul. Sú byggingartækni gerir Audi bílinn framþungan en það virðist þó ekki saka að 60% af þyngdinni sé á framhluta bílsins. Audi RS3 er með hinu víðfræga Quattro fjórhjóladrifi sem dreifir aflinu á milli hjólanna eftir átaki vélarinnar.
Fljótt á litið lítur þessi snaggaralegi bíll ekkert öðruvísi en venjulegur fjölskyldubíll.
Audi RS3 árgerð 2018
Fjöldi strokka: 5 í línu.
Nokkar laufléttar
Kústur eða svampur?
Kristinn keypti bílinn nýjan 2018 og hannaði bílinn eftir sínum óskum með aðstoð Heklu.
Hentar vel í borgaraksturinn en stendur sig ekki síður vel á Kvartmílubrautinni.
Stafrænt mælaborð Audi.
Við hjá Bílabloggi þökkum Kristni Soffaníasi Rúnarssyni kærlega fyrir rúntinn.
Ljósmyndir: Dagur Jóhannsson og Kristinn Soffanías Rúnarsson
Aðrar umfjallanir
Opinber smáatriði um hinn dularfulla nýja bíl eru ekki ljós en sjá má að hann muni hafa hönnun sem þróast úr 370Z coupé og verður nýjasta viðbótin við Z sportbíla...
Eftir að hafa sýnt okkur fyrsta Ford Ranger Raptor hefur fyrirtækið nú afhjúpað aðra kynslóð bílsins. Hann er byggður á nýja Ranger...
Flest þekkjum við ímynd stóra reykspúandi dráttarbílsins sem dregur á efir sér flutningavagn um þjóðvegina í Ameríku. Þeir eru...
Það er allt í pati bæði í Istanbúl í Tyrklandi og Aþenu í Grikklandi vegna óheyrilegrar ofankomu. 5000 bílar sátu fastir víðsvegar um Istanbúl í vikunni og í sumum tilvikum ekkert hægt að gera annað en að kveðja bílinn og halda áfram fótgangand