Frönsku eyðimerkurbílarnir sem urðu snjóbílar á Íslandi
Saga snjóbíla á Íslandi nær aftur um nokkuð marga áratugi, því fyrstu tilraunir með slíka bíla áttu sér stað fyrir liðlega 90 árum.
Vegagerðin flutti inn fjóra Citroën-Kégresse beltabíla árin 1929 og1930, en skoðum nú söguna aðeins nánar.
Upphaflega hannaðir til langferða um auðnir Sahara
Citroën-Kégresse beltabílarnir voru upphaflega hannaðir sem hernaðartæki og ökutæki fyrir landkönnuða þeirra tíma.
Hér er dæmi um einn af Citroën Kégresse til hernaðarnota, árgerð 1931 gerð P17.
Hér má sjá mynd frá upphafsárum hönnuðarins Adolphe Kégresse í Rússlandi árið 1914. Þessir bílar voru síðan undanfarar brynvarinna bíla með beltum sem notaðir voru í herjum margra landa.
En svo kom sérstök gerð fyrir snjó
Síðar kom á markaðinn ný gerð, P15 N. Þessi gerð er eina gerð Kégresse sem var sérstaklega hönnuð til aksturs á snjó. (N = neige-snjór). Mjög auðvelt er að þekkja P15 N vegna mjög langra og 40 cm breiðra belta, með tveimur rúllum efst til að tryggja að beltin haldist rétt á hjólunum. Beltin voru líka með betri spyrnum fyrir snjóinn og veittu gott grip.
P15 N var fyrsta gerð Kégresse sem var búin 2.442 cm³ sex strokka vél og flestir hliðarhlutir voru frá C6 fólksbílnum. P15 N var smíðaður til margra nota. Til dæmis sem fólksbíll, bæði með opnum og lokuðum yfirbyggingum eða sem flutningabíll
Beltabúnaður P15 N var einnig notaður í sumum brynvörðum ökutækjum. Þrír P15 N (eða NK) voru notaðir af Byrd aðmíráli í leiðangri hans til Suðurskautslandsins árið 1934.
P15 NK kom fram árið 1932. Stærri og þyngri (1.900 kg undirvagn), með 4 gíra gírkassa og mótor sem var 3.015 cm³. P15 NB, einnig þekktur sem P15 N 75, kemur árið 1933 í stað upprunalega P15 N með 1.575 kg undirvagni og nútímalegum með 4 gíra gírkassa og 3.015 cm³ vél.
Snjóbílarnir koma til Íslands
Árið 1929 keypti Vegagerðin einn Citroën Kégresse snjóbíl en bíllinn var með beltum að aftan og skíðum að framan. Ári síðar voru þrír bílar til viðbótar keyptir. Tveir bílar stóðust tímans tönn þótt þeir gerðu það misjafnlega vel; annar þeirra endaði til að mynda ævina á Fjarðarheiði.
Þessa mynd af bílnum sem var á Holtavörðuheiði og er hér við Fornahvamm, má sjá á vefsvæðinu Snjóbílar á Íslandi fyrr og nú á Facebook, en myndinn deildi Guðmundur Skúli Halldórsson.
Sá sem þetta skrifar fór eina af sínum ferðum norður í land snemma sumars árið 1950. Við gistum í Fornahvammi og morguninn eftir gerði afi minn sér sérstaka ferð með strákinn út í móa, spölkorn frá Fornahvammi til að sýna mér þennan merka snjóbíl sem þar stóð.
Snjóbíllinn á Holtavörðuheiði.
Saga bílsins á Íslandi
Þór Magnússon fyrrverandi þjóðminjavörður skráði sögu bílsins í skrár Þjóðminjasafnsins, en frásögn hans fylgir hér á eftir:
Bílarnir voru á beltum að aftan, en framhjólin gengu gegnum skíði, og sleði var undir bílnum að framan. Á bílum sem notaðir voru á sandauðnum var stór rúlla fremst í stað skíða.
Jónas Jónsson frá Hriflu frétti af þessari uppfinningu og lagði til í grein árið 1926 að fá hingað slíka bíla til að nota að vetrarlagi á fjallvegum „meðan járnbrautarmálið liggur í þagnargildi.” Jónas flutti síðan tillögu á alþingi árið 1927 um að kaupa slíka bifreið til reynslu.
Hér má sjá Citroën Kégresse snjóbílinn sem var á Holtavörðuheiðinni á Samgöngusafninu að Skógum.
Hér er mynd af fjórða snjóbílnum sem vagnasmiðurinn Tryggvi Pétursson smíðaði yfirbyggingu á til vöruflutninga, en bíllinn var aðallega notaður til vöru- og mjólkurflutninga yfir Hellisheiðina á árunum upp úr 1930. Á þessari mynd er bíllinn í porti Vegagerðarinnar við Borgartún, en greinilega búið að taka beltin og nota sem varahluti í einhvern hinna bílanna.
Áhugi í öðrum löndum
Áhugi er nokkur á þessum bílum og er til sérstök vefsíða um þá og hafa aðstandendur hennar komið til Íslands til að skoða bílana, en annar er á safninu í Skógum, og til að kynna sér hvað varð um alla bílana.
Þegar P15 kom til Íslands
Þessi danska áhugamannasíða segir svo um sögu snjóbílanna á Íslandi:
Af þessum fjórum innfluttum Citroën-Kégresses eru enn tveir til á Íslandi.
Einn er á Samgöngusafninu á Skógum og leifar annars eru í vörugeymslu Þjóðminjasafnsins. Því miður hefur vélunum í báðum bílunum verið skipt út fyrir 4 strokka Ford A-vélar í stað 6-strokka Citroën-véla“.
Svo mörg voru þau orð, en það er ávallt gaman að skoða svona brot úr bílasögunni hér á landi.
Aðrar umfjallanir
„Ertu klár í bíltúr inn í eilífðina?“ Þetta er slagorð líkkistusmiðs nokkurs í Bandaríkjunum en hann er einn þeirra sem smíða óhefðbundnar kistur; Bílalíkkistur fyrir bílaáhugamenn.
Sumar hugmyndir eru einfaldlega vondar. En sem betur fer verða flestar þeirra aldrei annað en það sem þær einmitt ættu bara að vera; hugmyndir.
Samtals er smíðaður á ári hverju álitlegur fjöldi bíla í heiminum. Stóru „risarnir" bandarísku hafa þegar skilað...