Michelin vill búa til bíldekk úr endurunnum plastflöskum
Tæplega þrír milljarðar af plastflöskum á ári gætu verið endurunnar til framleiðslu á dekkjum.
Franski dekkjarisinn hefur prófað farsællega endurvinnslutækni úr plasti frá franska lífefnafyrirtækinu Carbios sem hægt er að nota við dekkjaframleiðslu.
Enzym endurvinnsluferli Carbios fyrir pólýetýlen terephthalate (oftast þekkt sem PET) plastúrgangur reiðir sig á ensím sem getur „afpólýmeriserað“ plast. PET er sú tegund plasts sem notuð er til að búa til flöskur, pólýesterfatnað og jafnvel nokkrar tegundir teppa.
Það er venjulega endurunnið (þar á meðal í flíspeysum), en er einnig ein aðal uppspretta plastúrgangs.
„Þessi hátæknilega styrking hefur sýnt fram á hæfni sína til að veita sömu frammistöðu og efni frá olíuiðnaði“, sagði Nicolas Seeboth, forstöðumaður fjölliða rannsókna hjá Michelin, í yfirlýsingu.
Michelin áætlar að hægt væri að endurvinna næstum 3 milljarða plastflöskur á ári í tæknilegar trefjar til að nota í dekk fyrirtækisins.
Aðrar umfjallanir
Gaurarnir hjá The Straight Pipes tóku nokkra góða spretti á völdum sporturum. Hvaða bílar finnst þér hljóma best?
Stjórnarformaður Toyota nefnir „þögulan meirihluta“ sem rök gegn framtíð með eingöngu rafbíla...
Vörubílstjórar eru auðvitað á ferðinni á undarlegustu tímum og það er einmitt þá sem undarlegir hlutir eiga sér stað. Sögur bandarískra vörubílstjóra eru fjölmargar og hér er ein góð - um það sem ekki er á ferli í dagsbirtu!
Háleitar voru þær, hugmyndir manns um fyrsta bílinn. Svo eignaðist ég nú bara Fiat Uno 60 ´87 árgerð en það var ágæt byrjun. Byrja á einhverju mjög lélegu. En af þeim bílum sem mig langaði að eignast sem 17 ára gemlingur þá hef ég nú eignast nokkra þeirra eftir að ég varð stór.