Hlutfall rafbílasölu BL á 1. ársfjórðungi aldrei hærra en nú
Í mars voru 249 fólks- og sendibílar af merkjum BL nýskráðir hér á landi, tæpum 53% fleiri en í mars 2020 þegar þeir voru 163. Mikill meirihluti bílanna, 181, fór til einstaklinga og fyrirtækja.
Af merkjum BL var Nissan með flestar nýskráningar eða 87 og var Nissan helsta merki fyrirtækisins í nýskráningum til meginmarkaðanna þriggja; einstaklinga, fyrirtækja og bílaleiga. Nissan var jafnframt fjórða söluhæsta bílamerki landsins á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði og jafnframt helsta merki BL á bílaleigumarkaði.
Ný merki og endurhannaðar gerðir vinsælla fólksbíla frumsýndar
Talsvert minni samdráttur varð í nýskráningum fólks- og sendibíla hjá BL á fyrsta ársfjórðungi miðað við sama tímabil 2020 heldur en á markaðnunm í heild. Nam hann aðeins 6,6% á sama tíma og hann var 15,6% á markaðnum í heild.
Skýrist það einkum af breiðu úrvali fólksbílamerkja þar sem nýjar tegundir hafa bæst við (MG) og nýjar og uppfærðar gerðir vinsælla bíla litið dagsins ljós frá áramótum.
Þar á meðal eru Clio og Captur frá Renault og i20 frá Hyundai sem jafnan njóta vinsælda hjá stórum hópi neytenda. Hlutdeild BL á markaðnum á fyrsta ársfjórðungi var 24,7%.
Fleiri fólksbílar til einstaklinga og fyrirtækja
Þess má einnig geta að sé eingöngu litið til fólksbílasölu BL (án sendi- og pallbíla) til einstaklinga og fyrirtækja undanfarna þrjá mánuði voru 409 slíkir nýskráðir á tímabilinu, 12,1% fleiri en á fyrsta ársfjórðungi 2020.
Á sama tíma hefur salan til markhópins í heild dregist saman um 7,3%. Markaðshlutdeild BL á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði það sem af er ári er 22,9%, sem er fjórum prósentustigum meira en í fyrra.
Hæsta hlutfall hreinna rafbíla á 1. ársfjórðungi
Af 249 nýskráðum fólks- og sendibílum af merkjum BL í mars voru 102 nýorkubílar, 65 hreinir rafbílar og 37 tengiltvinnbílar. Rafbílar voru flestir frá Nissan og Hyundai og tengiltvinnbílarnir frá Land Rover og BMW.
Aðrar umfjallanir
Þessi spennandi bíll sem smíðaður er í Kína sameinar þætti fólksbíls, stationbíls og sportjeppa; tengitvinn blendingur í boði...
Þann 6. desember fyrir 45 árum síðan, setti kona að nafni Kitty O´Neil heimsmet þegar hún náði 824 kílómetra hraða á farartæki á þremur hjólum sem knúið var eldflaug. Það var margt sérstakt við Kitty en hún var heyrnarlaus og gegndi mjög hættulegu starfi!
Einu sinni var okkur sögð sagan af nýju fötum keisarans, en samkvæmt því sem Terje Ringen skrifar á vef BilNorge þá er ekkert slíkt á ferðinni varðandi Citroën C5 Aircross...
Toyota kynnir fyrsta Corolla sportjeppann sem býr yfir þeirri virkni og afköstum sem krafist er nú á tímum.