Tæknilegasti húsbíll í heimi?
Tesla ætlar ekki að hefja framleiðslu á pallbílnum fyrr en á næsta ári [frétt frá apríl 2021] en samt sem áður er komin húsbílaútfærsla af kagganum sem heitir Cyberlandr.
Cyberlandr státar af næstu kynslóðar þægindum tuttugustu og fyrstu aldarinnar og hönnunin er vægast sagt nútímaleg.
Sprettigluggahönnun
Hönnun Cyberlandr myndi líklega kallast pop-up window (sprettigluggi) ef hann væri vefur. Dags daglega er húsbíllinn með lögun venjulegs pallbíls en þú getur togað pallhýsið upp þannig að í heild verður það fjórum sinnum hærra en sjálfur bíllinn. Húsið togast út og upp fyrir pallinn. Þannig er bíllinn orðinn að litlu tveggja herbergja rými: stofu, eldhúsi, svefnplássi og agnarsmáu baðherbergi.
Það fyrsta sem kemur upp í hugann er að líklega myndi maður ekki toga húsið upp fyrr en eftir að maður er kominn upp fyrir Kjalarnesið allavega.
Íbúð með sem skilur þig
Aðalrýmið er stofa/eldhús með ísskáp, vaski og eldavél sem innfelld er í borðplötuna. Blöndunartækin eru snertilaus með raddstýringu.
Aldrei að láta sér leiðast
Ef þér á til að leiðast úti í náttúrunni þarftu ekki að örvænta því í bílnum er 32 tommu skjár sem vel að merkja getur bæði þjónað sem sjónvarp og tölvuskjár fyrir alla vinnualkana sem aldrei geta verið netlausir, tölvulausir og verða hreinlega að vinna, hvar sem þeir eru.
Draumasalernið
Þú talar síðan við baðherbergið með appi í gegnum símann. Þar er „sjálfhreinsandi“ þurrskolunarsalerni sem útilokar þörfina á svörtum skítatanki og ferðum á losunarstöðvar með tilheyrandi ullabjakki. Fjögurra þrepa vatnssíunarkerfi gerir þér kleift að fara í sturtu sem notar alltaf sama vatnið aftur og aftur.
Þeir hjá Cyberlandr segja hins vegar að ofangreint geti breyst og framleiðslan sé háð breytingum (þótt ótrúlegt sé – innsk. blmanns.).
Helsta ástæðan þar er að Tesla hefur ekki enn gefið út endanlega útgáfu pallbílsins. Engu að síður er tekið við pöntunum og innáborgunum.
(Byggt á frétt Autoblog - myndir Autoblog)
Aðrar umfjallanir
Breski jarðolíurisinn Ineos hefur undirritað samning við Daimler um að kaupa verksmiðju þýska bílaframleiðandans í Hambach í Frakklandi...
Níundi áratugurinn var kannski ekki sérlega spennandi hvað ameríska bíla varðar. Á markaðinn herjuðu stjórnvöld með nýjum reglugerðum...
Þó fæstir reikni hestöfl út frá skilgreiningu James Watt þá ættu flestir að átta sig á að því fleiri hestöfl sem bíll hefur því hraðar getur hann farið. En hvað er snúningsvægi?
Eftir að Bugatti ‘Baby II’ rafbíllinn var settur á markað (eins og Bílablogg fjallaði um í fyrra) hefur Little Car Company tekið höndum saman við Aston Martin...