Nýtt merki Renault verður á öllum gerðum árið 2024
- Endurhannað demantsmerki Renault á nýjum bílum þeirra árið 2024
Renault hefur staðfest að allir nýir bílar þeirra muni bera nýtt merki frá og með 2024 sem er innblásið af fortíð fyrirtækisins.
Nýja skjöldurinn kom í ljós fyrr á þessu ári á Renault 5 frumgerðinni, sem verður „á viðráðanlegu verði“ - lítill rafknúinn hlaðbakur sem kemur árið 2025. Hönnunarstjóri Renault, Giles Vidal, hefur staðfest að nýja, einfaldara merkið sem er að finna á Renault 5 sem byggir á útliti gamla bílsins muni verða á sínum stað framan á bílum sínum.
„Demanturinn er eitt þekktasta form heimsins og í heimi bifreiða. Það er einfalt rúmfræðilegt lögun, með sterka og öfluga sjálfsmynd. Áskorunin var að endurnýja þetta form með því að gefa því merkingu ásamt nýjum samtímagildum til að varpa vörumerkinu inn í framtíðina.
„Við samþættum það í fyrsta sinn í þessum nýja Renault 5. Þetta var fyrir okkur skemmtileg prófun. Í ljósi ákveðinna og mjög jákvæðra viðbragða sem við fengum varðandi merkið ákváðum við að setja það af stað," sagði Vidal.
Renault demanturinn hefur verið endurhannaður níu sinnum, þar sem fyrirtækið tók upp lögunina árið 1925. Núverandi merki var búið til árið 1992 og endurhannað árið 2015, en þetta nýja merki er miklu einfaldara og sú breyting markar framgang Renault í nýja tíma, samkvæmt því sem Renault segir.
Einfaldara merki í tvívídd mun birtast betur á stafrænu formi en núverandi 3D vörumerki, en flata meðferðin gerir kleift að gera hreyfimyndir í vódeói eða stafrænum miðlum, lykilatriði varðandi tækni í bílnum og hvernig Renault mun markaðssetja bíla sína í framtíðinni.
(frétt á Auto Express)
Aðrar umfjallanir
BMW mun opinberlega afhjúpa aðra kynslóð BMW 4 seríunnar á morgun, þriðudaginn 2. júní, en myndir sem lekið var á netið sýna nýja hönnun coupé-bílsins að utan...
Hollenski ljósmyndarinn Willem van de Poll kom hingað til lands árið 1934 með skipinu Dronning Alexandrine. Ferðaðist hann um Ísland ásamt þýska blaðamanninum Anitu Joachim en hún skrifaði um land og þjóð. Auðvitað bregður bílum fyrir í ljósmyndasafninu!
Hyundai Casper: Þeir gerast varla sætari, segja þeir hjá BilNorge.
Maður þarf auðvitað ekki að skilja allt, sem betur fer! Stundum vekur eitthvað mikla lukku úti í hinum stóra heimi og svo situr einhver hér á Íslandi og botnar ekki neitt í neinu. Dæmi um það gæti verið nýjungin sem hugbúnaðaruppfærsla 11.0 frá Tesla færir heiminum: Tesla Light Show.