Mercedes undirbýr frumsýningu á EQE rafbíl, keppinaut Tesla Model S
- Rafknúinn Mercedes EQE verður kynntur á IAA bílasýningunni í München í Þýskalandi
Mercedes-Benz gerir ráð fyrir að frumsýna EQE stóra rafbílinn sem eingöngu notar rafhlöður í september, sagði Ola Kallenius forstjóri.
Mercedes EQE frumgerð er hér mynduð í reynsluakstri 14. desember 2020. Mynd: Daimler
Samkvæmt núverandi áætlunum bílaframleiðandans mun Mercedes afhjúpa EQE í IAA í München, sem tekur við af bílasýningunni sem haldin var á tveggja ára fresti í Frankfurt sem stærsta bílasýning Þýskalands.
Framleiðsla EQE hefst í verksmiðju Mercedes í Bremen í Þýskalandi og hefst á seinni hluta ársins. Bíllinn verður einnig smíðaður í Beijing í Kína.
Það eru fáar aðrar upplýsingar um EQE, en forskriftir hans benda til þess, eins og EQS, að hann fái verulega lengra aksturssvið en rafbílar Benz sem byggja á breyttum grunni bíla með brunavélar.
Mercedes EQS í felulitum í vetrarprófun.
Reiknað er með að EQS hafi meira en 700 km WLTP aksturssvið, samkvæmt upplýsingum Mercedes. EQS mun rúlla af sama færibandi og S-Class flaggskip fólksbifreiðar í verksmiðju bílaframleiðandans í Sindelfingen, nálægt Stuttgart, frá og með þessu ári. Hann verður einnig framleiddur í verksmiðju Mercedes í Vance, Alabama í Bandaríkjunum, frá og með júní 2022.
Eftirspurn eftir EQC hefur valdið vonbrigðum, en aðeins 20.000 seldust á heimsvísu í fyrra á móti 47.000 eintökum fyrir rafknúna Audi e-tron og e-tron Sportback.
Byggt á athugasemdum sem Kallenius lét falla á fjárhagsráðstefnu Mercedes í síðustu viku, lítur Mercedes á EQE sem beinni keppinaut við Model S og Taycan en EQS. Kallenius sagði að EQS yrði í sínum eigin flokki.
Mercedes hefur sagt að EQS verði fyrsta gerð rafbíla þeirra í Bandaríkjunum.
Mercedes-Benz ætlar að setja EQB, lítinn „crossover“ á markað snemma á næsta ári.
Á milli frumsýninga á EQS og EQE mun Mercedes frumsýna hinn litla EQB, rafknúna sportjeppann, sem smíðaður verður í Ungverjalandi. Í síðasta mánuði kynnti vörumerkið síðan EQA. Hann verður smíðaður í Rastatt í Þýskalandi.
EQC, EQA og EQA nota sveigjanlegan grunn sem rúmar rafknúnar drifrásir og hefðbundna brunahreyfla.
EQA er með „Black Panel“ grill með stjörnu í miðju. Annað hönnunareinkenni fyrir EQ ökutæki vörumerkisins er samfellda ljósröndin að framan og aftan.
(frétt á Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Hefðbundnir gírkassar sem eru kallaðir beinskiptir eða af sumum handskiptir eru með kúplingu sem er þurr og nokkrum gírum sem dvelja innilokaðir...
Nokkrar myndir af væntanlegri rafdrifnum crossover frá Buick, Electra E5, hafa lekið út í Kína...
Ítalska bifreiðafyrirtækið Pininfarina er 90 ára. Hönnun bifreiða hans hefur mótað iðnaðinn í áratugi...
Passaðu þig á svona „bílstjórum“! Fyndnar auglýsingar geta gefið tóninn í upphafi vikunnar og átt sinn þátt í að koma fólki kampakátu af stað út í umferðina svona á mánudagsmorgni.