Nýr Audi Q5 Sportback TFSI e PHEV kynntur

    • Audi hefur sett á markað tvær tengitvinnbílaútgáfur af Q5 Sportback en sú öflugasta er 362 hestöfl

image

Audi Q5 Sportback coupe-sportjeppinn er nú fáanlegur með vali á tveimur tengitvinn aflrásum: 50 TFSI e quattro Sport og 55 TFSI e quattro.

image

Báðar gerðir tengitvinnbíla Audi eru með fjórum akstursstillingum: rafmagn, Hybrid, biðstilling og hleðsla. Fyrstu tvær skýra sig sjálfar og bjóða upp á sérstakar stillingar fyrir annað hvort bara rafmagn eð akstur með rafmagnsaðstoð.

Biðstilling geymir hleðslu rafhlöðunnar til notkunar seinna á ferðinni, sem er gagnlegt ef síðari hluti ferðar fer á losunarstýrt svæði. Að lokum fyllir hleðslustilling hægt á rafhlöðupakkann með bensínvélinni.

image

Staðalbúnaður fyrir Audi Q5 Sportback 50 TFSI e quattro Sport inniheldur 18 tommu álfelgur, LED framljós, króm útblástursrör, álþakbogar, bílastæðaskynjara að framan og aftan, bakkmyndavél og glansandi svartar áfellur utan.

Að innan eru par af hituðum sportsætum með leðri, þriggja svæða loftslagsstýring, 10,1 tommu upplýsingaskjár og 12,3 tommu stafrænn tækjaklasi sem báðir eru með sérstaka valmyndarmöguleika fyrir nýju PHEV aflrásina.

image

Að innan eru bílarnir með áherslum úr burstuðu áli, sportstýri og svvartri klæðningu í þaki. Sportsætunum sem eru staðalbúnaður á Q5 er einnig skipt út fyrir leður og Alcantara með merki S-línu sem er útsaumað.

Audi býður einnig upp á sérstaka útgáfu af 2,0 lítra PHEV Q5 Sportback, sem kallast Edition 1. Þar er búið að bæta við 20 tommu demantsskornum álfelgum, rauðum bremsubúnaði og „Black Styling Pack“, sem skiptir út hurðarspeglum sportjeppans, grilli, innfellingum í stuðara og áfellum á afturhlera með svartri gljáandi áferð.

image

55 TFSI e quattro  með V6-vél í kemur í tveimur forskriftum: „Competition“ og „Competition Vorsprung“, og er með svipaðan búnað og afbrigði S línunnar, þó með hljóðeinangrun í rúðum, framsæti með nuddi og 20 tommu álfelgur.

Að lokum er flaggskipið Q5 Sportback 55 TFSI e „Competition Vorsprung“ er með allan búnað sem er að finna á 50 TFSI e Vorsprung, paraður með öflugri PHEV drifbúnaði.

(frétt á Auto Express)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is