Android Auto uppfærsla
Það er komin ný uppfærsla fyrir Android Auto. Þessi útgáfa virkar með Android 6.0+ þ.e. eldri útgáfur en 6.0 af Android stýrikerfinu keyra ekki þessa uppfærslu. Nýjasta uppfærslan er útgáfa 6.1.
Helstu nýjungarnar í þessari útgáfu eru veggfóður eða bakgrunnsmyndir fyrir skjáinn, en það eru 15 myndir í boði.
Google virðist vera búið að virkja Google Assistant routines á ný. Sem ég giska á að sé röð aðgerða sem fara af stað þegar skipun er gefin um það sem sagt forrituð rútína. En þá þarf ökumaðurinn bara að gefa eina skipun í staðinn fyrir að vera að velja fullt af aðgerðum sem taka athyglina frá akstrinum.
Að auki hafa verið gerðar endurbætur og lagfæringar sem blasa ekki við. Það er ekki tilbúinn listi yfir þetta en Ford hefur staðfest einhverjar lagfæringar og endurbætur. Við vonum bara að það hafi ekki verið búin til ný vandamál í staðinn.
Aðrar umfjallanir
Það er ekki oft sem nýir eða uppfærðir jeppar frá Jeep eru afhjúpaðir í Evrópu á undan Bandaríkjunum, en fer Evrópa með aðalhlutverkið...
Samkvæmt frétt Reuters er Tesla að hefja framleiðslu á “Semi” rafknúnum vörubílum og PepsiCo Inc mun fá fyrstu bílana afhenta þann...
Audi kynnir nú einnig Q8 með tengitvinndrifrás og gerir það að sjöundu PHEV-gerðinni sem kynnt hefur verið frá því um mitt ár 2019...
Það þarf mikið til að ökumenn í Formúlu 1 mæti ekki til keppni sem þeir ætla að taka þátt í. Það hefur gerst nokkrum sinnum í gegnum tíðina og myndband nokkurt fékk mig til að dusta rykið af sögunni af því þegar Juan Manuel Fangio var rænt.